Fótbolti

Forseti Real Madrid kemur Pique til varnar

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Pique ræðir hér við liðsfélaga sína í spænska landsliðinu.
Pique ræðir hér við liðsfélaga sína í spænska landsliðinu. Vísir/Getty
Forseti Real Madrid kom Gerard Pique, varnarmanni Barcelona, til varnar í gær eftir að stuðningsmenn bauluðu á Pique í leik spænska landsliðsins gegn Slóvakíu á dögunum.

Pique sem er uppalinn í Barcelona hefur vakið mikla athygli á Spáni undanfarin ár með skoðunum sínum um sjálfstæði Katalóníu.

Sagði Sergio Ramos, liðsfélagi hans hjá spænska landsliðinu, í viðtölum eftir leik að hann þyrfti betur að hugsa um hvað hann væri að segja í samtali við fjölmiðla.

Hafa leikmenn á borð við Cesc Fabregas, Santi Cazorla og Jordi Alba allir stutt við bakið á Pique en það þykir athyglisvert að forseti erkifjenda Barcelona í Real Madrid komi leikmanni Barcelona til varnar.

„Ég er vis um að hann segi stundum vitlausa hluti eins og allir lenda í en það gefur aðdáendum ekki rétt til þess að baula og flauta á eigin leikmenn, hvað þá fyrir leikmenn sem spila fyrir landsliðið. Hann er eins og hann er en hann á ekki skilið þessa meðferð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×