Fótbolti

Suárez tryggði Barcelona stigin þrjú gegn Leverkusen | Sjáðu mörkin

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Luis Suárez og Sergi Roberto björguðu Barcelona fyrir horn í 2-1 sigri á Bayer Leverkusen á Nývangi í kvöld.

Leverkusen komst yfir um miðbik fyrri hálfleiks með marki Kyriakos Papadopoulos og virtist allt stefna í að þýska félagið myndi taka stigin þrjú þegar korter var til leiksloka.

Þá komu tvö mörk frá heimamönnum með skömmu millibili, Sergi Roberto og Luis Suárez settu tvö mörk með tveggja mínútna millibili og tryggðu Barcelona stigin þrjú.

Sergi Roberto jafnar metin Suárez kemur Barcelona yfir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×