Körfubolti

Þriðji titill Lynx á fimm árum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Lynx fagna titlinum í nótt.
Leikmenn Lynx fagna titlinum í nótt. vísir/getty
Gleðin var við völd í Minneapolis í nótt er Minnesota Lynx tryggði sér þriðja titilinn á fimm árum í WNBA-deildinni í körfubolta.

Lynx vann þá sigur á Indiana Fever, 69-52, í oddaleik fyrir framan fullu húsi áhorfenda.

Sylvia Fowles skoraði 20 stig og tók 11 fráköst fyrir Lynx. Seimone Augustus skoraði 16 stig og Rebekkah Brunson lagði sitt af mörkum með 14 fráköstum.

Þetta var í fyrsta sinn sem Lynx nær að tryggja sér titilinn á heimavelli og tæplega 19 þúsund áhorfendur misstu sig af gleði.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×