Handbolti

Þetta eru asnaleg og gamaldags vinnubrögð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hildigunnur bíður nú og vonast eftir farsælli lausn á sínum málum.
Hildigunnur bíður nú og vonast eftir farsælli lausn á sínum málum. vísir/valli
„Það lítur allt út fyrir að maður sé komin í snemmbúið sumarfrí. Kósí, fjórir mánuðir fram undan hjá mér,“ sagði landsliðskonan Hildigunnur Einarsdóttir kaldhæðnislega en hún má ekkert spila handbolta fyrr en næsta vetur þar sem norska handknattleikssambandið hefur sett hana í fjögurra mánaða bann.

Forsaga málsins er sú að Hildigunnur vildi komast frá Tertnes og úr varð að hún ákvað að skella sér til Molde þar sem Einar Jónsson er þjálfari. Þar var hún örugg um að fá að spila meira.

Það var gengið frá öllu á réttum tíma, gengið frá greiðslu í gegnum netbanka og rafræn kvittun send til norska handknattleikssambandsins. Pappírskvittun kom svo degi síðar, en þá hafði félagaskiptaglugganum verið lokað, og það reyndist ekki vera nógu gott.

Norska sambandið neitaði að taka rafrænu kvittunina góða og gilda og dæmdi Hildigunni í bann út tímabilið.

„Þetta kom alveg flatt upp á mig. Ég hef verið í hálfgerðu losti síðan. Þetta eru ótrúlega gamaldags vinnubrögð árið 2015. Þeir vildu fá kvittun líka í pósti. Það vinnur enginn svona lengur. Þetta eru asnaleg og gamaldags vinnubrögð. Það er voða auðvelt fyrir þá að sitja fyrir aftan eitthvert skrifborð og segja að ég fái ekki að spila. Nú er ég í banni í fjóra mánuði því þeir geta ekki sýnt smá liðleika. Við gerðum ekkert rangt. Það er aðeins gamaldagsvinnubrögð sem eru að bitna á mér.“

Gæti farið til Þýskalands

Molde er búið að áfrýja úrskurðinum og liggur niðurstaða í því ekki fyrir. Þýski leikmannaglugginn er opinn til 15. febrúar og þegar hann lokast er endanlega búið að loka öllum gluggum fari svo að áfrýjunin í Noregi skili engum árangri.

„Þetta er stuttur tími og allt gengur eitthvað svo hægt. Ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta muni enda hjá mér. Við vorum bjartsýn á að þetta myndi ganga í gegn þar sem við gátum sýnt fram á að allt hefði verið frágengið í tíma.“

Hildigunnur fór frá Tertnes til þess að spila meira en endar hugsanlega með því að fá ekki að spila mínútu í viðbót í vetur. Það verður ekki meira svekkjandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×