Fótbolti

Auðveldur sigur hjá Atletico Madrid

Stefán Árni Pálsson skrifar
Antoine Griezmann skoraði í kvöld.
Antoine Griezmann skoraði í kvöld. vísir/getty
Atletico Madrid vann öruggan sigur á Deportivo La Coruna, 3-0, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en leikurinn fór fram í Madríd. 

Saul Niguez skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu leiksins. Antoine Griezmann kom heimamönnum í 2-0 hálftíma fyrir leikslok og það var síðan Angel Correa sem innsiglaði góðan sigur á 83. mínútu. 

Atletico Madrid er enn í öðru sæti deildarinnar með 67 stig, átta stigum á eftir Barcelona sem er í efsta sætinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×