Körfubolti

Boston batt enda á sigurgöngu Golden State

Stephen Curry mistókst að jafna metin undir lokinn og Boston fór með sigur af hólmi.
Stephen Curry mistókst að jafna metin undir lokinn og Boston fór með sigur af hólmi. vísir/getty
Eftir 54 sigurleiki á heimavelli beið Golden State lægri hlut í nótt þegar Boston Celtics kom í heimsókn. Lokatölur urðu 109-106 en síðasta tap Golden State Warriors í Oracle Arena var gegn Chicago Bulls 27. janúar 2015, fyrir rétt rúmum 14 mánuðum síðan.

 

Stephen Curry fékk tækifæri til að jafna metin fyrir Golden State en þriggja stig skot hans geigaði þegar 5,3 sekúndur voru eftir.

 

"Ég trúi alltaf að þessi skot hjá mér fari niður. En þetta fór á aðra leið. En skotið leit vel út. Við höfum eflaust unnið einhverja leiki sem við áttum ekki skilið að vinna með svona skoti og þetta var bara ekki okkar kvöld," sagði Curry eftir leikinn.

 

Curry var stigahæstur í liði Golden State með 29 stig en hjá Boston var Isaiah Thomas stigahæstur með 22 stig, Evan Turner skoraði 21 stig og Jared Sullinger var með 20 stig, auk þess sem hann tók 12 fráköst.

 

Golden State þarf nú að vinna fimm af sex síðustu leikjum sínum í deildinni til að slá met Chicago Bulls frá tímabilinu 1995-1996 þegar Bulls vann 72 leiki á einu tímabili. Golden State hefur nú unnið 68 leiki en tapað átta.

 

Úrslit næturinnar í NBA:

Charlotte - Philadelphia 100-91

Detroit - Dallas 89-98

New York - Brooklyn 105-91

Atlanta - Cleveland 108-110

Memphis - Toronto 95-99

Milwaukee - Orlando 113-110

Utah - Minnesota 98-85

Sacramento - Miama 106-112

Golden State - Boston 106-109

Phoenix - Washington 99-106

Staðan

Austurdeildin Sigrar Töp

Cleveland 54 22

Toronto 51 24

Miami 44 31

Charlotte 44 31

Atlanta 45 32

Boston 44 32

Detroit 40 36

Indiana 39 36

Chicago 38 37

Washington 37 39

Milwaukee 32 44

Orlando 32 44

New York 31 46

Brooklyn 21 55

Philadelphia 9 67

  

Vesturdeildin Sigrar Töp

Golden State 68 8

San Antonio 63 12

Oklahoma City 53 23

L.A. Clippers 47 28

Memphis 41 35

Portland 40 36

Dallas 38 38

Utah 38 38

Houston 37 39

Denver 32 45

Sacramento 30 46

New Orleans 28 47

Minnesota 25 51

Phoenix 20 56

L.A. Lakers 16 59

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×