Körfubolti

Griffin og Paul báðir úr leik hjá Clippers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Griffin og Paul eru báðir úr leik.
Griffin og Paul eru báðir úr leik. vísir/getty
Það hefur verið staðfest að Blake Griffin getur ekki spilað meira á tímabilinu og ólíklegt er að Chris Paul geti einnig spilað meira.

Þetta eru tveir bestu leikmenn LA Clippers og tímabilið því svo gott sem búið hjá þeim.

Báðir meiddust þeir í fjórða leiknum gegn Portland. Paul hefur þegar gengist undir aðgerð á hendi og er frá í fjórar til sex vikur. Griffin er á sjúkralistanum og verður þar fram á næsta tímabil.

Staðan í einvíginu er 2-2 en það verður á brattann að sækja hjá Clippers án þessara lykilmanna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×