Körfubolti

Jordan ekki hrifinn af vinsældum myndarinnar af honum grátandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Jordan sést halda ræðuna en þetta er þó ekki myndin fræga.
Michael Jordan sést halda ræðuna en þetta er þó ekki myndin fræga. Vísir/EPA
Michael Jordan er að flestra mati besti körfuboltamaður allra tíma og táknmynd sigurvegarans. Það þarf því ekki að koma mikið á óvart að kappinn sé ekki alltof sáttur með að sjá mynd af sér grátandi út um allt.

Michael Jordan vann sex NBA-titla með Chicago Bulls frá 1991 til 1998, var tíu sinnum stigahæstur í deildinni og fimm sinnum kosinn besti leikmaður deildarinnar.

„Grátandi MJ" myndin hefur verið vinsæl á samskiptamiðlum en hún var tekinn þegar Michael Jordan táraðist við að halda ræðu þegar hann var tekinn inn í Frægðarhöll körfuboltans 11. september 2009.

Stephan Savoia, ljósmyndari Associated Press fréttastofunnar, tók myndina og netverjar hafa síðan notað hana sem táknmynd þegar þeir fjalla um einhverja sem eiga bágt eða hafa lent í einhverju mjög sorglegu í sínu lífi.

Michael Jordan ætlar nú ekkert að leita réttar síns í þessu máli en fyrrum liðsfélagi hans, Charles Oakley, segir Jordan ekki vera ánægður.

„Nei, hann er ekki hrifinn af þessu," sagði Charles Oakley og það þarf nú ekki að koma á óvart.

Dæmi um hvernig myndin er notuð er þessi grínfrétt sbnation.com sem má finna hér en það má finna hana í allskonar kringumstæðum úr um allt netið.

Blaðamaður New Yorker hefur einnig skrifað um málið þar sem hann veltir fyrir sér hvort að fleiri munu á endanum þekkja "Crying Jordan" en "Air Jordan". Það er margt til í þessum skrifum enda fjölgar þeim alltaf í heiminum sem voru ekki fæddir þegar enginn gat stoppað Michael Jordan inn á körfuboltavellinum og hann átti hreinlega heiminn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×