Dramatík í Oklahoma | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. nóvember 2016 11:26 Blake Griffin skoraði 25 stig í sigrinum á Oklahoma. vísir/afp
Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Clippers hefur aldrei farið jafn vel af stað og þessu tímabili og í nótt vann liðið Oklahoma City Thunder, 108-110, á útivelli. Russell Westbrook var í miklum ham í liði Oklahoma; skoraði 29 stig, tók 14 fráköst og gaf níu stoðsendingar, en hann klikkaði á lokaskotinu þegar tvær sekúndur voru eftir. Blake Griffin var stigahæstur í liði Clippers með 25 stig. Jamal Crawford skilaði 19 stigum af bekknum og Chris Paul skoraði 17 stig og gaf tíu stoðsendingar. LeBron James skoraði 27 stig, tók tíu fráköst og gaf fimm stoðsendingar þegar Cleveland Cavaliers vann 11 stiga sigur, 94-105, á Washington Wizards á útivelli. Cleveland er með bestan árangur allra liða í Austurdeildinni en meistararnir hafa unnið sjö af fyrstu átta leikjum sínum. Kyrie Irving var einnig öflugur í liði Cleveland í höfuðborginni í nótt og skoraði 29 stig. Þá gerði Kevin Love 14 stig og tók 16 fráköst. Boston Celtics átti ekki í miklum vandræðum með að leggja New York Knicks að velli, 115-87, í TD Garden í Boston. Isiah Thomas fór fyrir Boston-mönnum með 29 stig en sjö leikmenn liðsins skoruðu tíu stig eða meira í leiknum í nótt. Kristpas Porzingis var stigahæstur í slöku liði Knicks með 14 stig.Úrslitin í nótt: Oklahoma 108-110 LA Clippers Washington 94-105 Cleveland Boston 115-87 NY Knicks Philadelphia 109-105 Indiana Charlotte 111-113 Toronto Orlando 74-87 Utah San Antonio 96-86 Detroit Portland 122-120 SacramentoLeBron James og Kyrie Irving skoruðu samtals 56 stig fyrir Cleveland Damian Lillard fór mikinn í sigri Portland Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira