Körfubolti

Russell Westbrook númer eitt og númer tvö | Efstu menn í tölfræðinni í NBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Russell Westbrook.
Russell Westbrook. Vísir/Getty
Russell Westbrook hefur farið á kostum með liði Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í vetur og er eins og stendur í efstu sætunum í bæði stigum og stoðsendingum sem er mögnuð tvenna.

Það var enginn leikur í NBA-deildinni í gær en leikmenn fengu frí vegna Þakkagjörðarhátíðarinnar. Það er aðeins spilað í NFL-deildinni á þessum mikla hátíðisdegi í Bandaríkjunum en liðin í NBA-deildinni taka sér öll frí.

Það er ekki úr vegi að nýta tækifærið og skoða aðeins hvaða leikmenn hafa skarað framúr í tölfræðinni í upphafi tímabilsins.

Russell Westbrook er stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar til þess með 31,8 stig að meðaltali í leik en hann er einnig búinn að gefa 10,5 stoðsendingar að meðaltali í leik á félaga sína í Oklahoma City Thunder. Það skilar Westbrook öðru sæti á stoðsendingalistanum.

Westbrook er einnig sá leikmaður sem hefur náð bæði flestum tvennum (12) og flestum þrennum (5) það sem af er tímabilinu.

 





James Harden er langefstur í stoðsendingum, með 12,5 í leik en hann er einnig fjórði í stigaskorun því Harden hefur skorað 28,7 stig að meðaltali í leik með liðinu.

Hér fyrir neðan má sjá fimm hæstu leikmenn í helstu tölfræðiþáttum NBA-deildarinnar í vetur.



Flest sitg að meðaltali í leik

1. Russell Westbrook, Oklahoma City Thunder 31,8

2. Anthony Davis, New Orleans Pelicans 31,3

3. DeMar DeRozan, Toronto Raptors 30,5

4. James Harden, Houston Rockets 28,7

5. Damian Lillard, Portland Trail Blazers 28,4

Flest fráköst að meðaltali í leik:

1. Hassan Whiteside, Miami Heat    15,4

2. Andre Drummond, Detroit Pistons    14,0

3. Dwight Howard, Atlanta Hawks    13,3

4. Marcin Gortat, Washington Wizards    12,5

5. DeAndre Jordan, Los Angeles Clippers    12,1

Flestar stoðsendingar að meðaltali í leik:

1. James Harden, Houston Rockets 12,5

2. Russell Westbrook, Oklahoma City Thunder 10,5

3. LeBron James, Cleveland Cavaliers    9,3

4. John Wall, Washington Wizards    8,9

5. Chris Paul, Los Angeles Clippers    8,5

 



Besta skotnýting í deildinni:

1. Rudy Gobert, Utah Jazz 63,4 prósent

2. Dwight Howard, Atlanta Hawks 62,5 prósent

3. Clint Capela, Houston Rockets 62,5 prósent

4. DeAndre Jordan, Los Angeles Clippers 60,2 prósent

5. Marcin Gortat, Washington Wizards 58,1 prósent

Flest varin skot í leik:

1. Anthony Davis, New Orleans Pelicans 2,80

2. Hassan Whiteside, Miami Heat 2,57

3. Joel Embiid, Philadelphia 76ers 2,36

4. Myles Turner, Indiana Pacers 2,33

5. Rudy Gobert, Utah Jazz 2,31

Flestir stolnir boltar í leik:

1. Chris Paul, Los Angeles Clippers 3,00

2. Thabo Sefolosha, Atlanta Hawks 2,33

3. Kawhi Leonard, San Antonio Spurs 2,20

4. Draymond Green, Golden State Warriors 2,13

5. Trevor Ariza, HHouston Rockets 2,07

Besta þriggja stiga skotnýtingin:

1. Mike Conley, Memphis Grizzlies 48,7 prósent

2. Channing Frye, Cleveland Cavaliers 48,5 prósent

3. C.J. Miles, Indiana Pacers  48,4 prósent

4. J.J. Redick, Los Angeles Clippers  48,1 prósent

5. Iman Shumpert, Cleveland Cavaliers 47,1 prósent

Besta vítanýtingin:

1. J.J. Barea, Dallas Mavericks 96,4 prósent

2. Arron Afflalo, Sacramento Kings 93,9 prósent

2. Nick Young, Los Angeles Lakers 93,9 prósent

2. Klay Thompson, Golden State Warriors 93,9 prósent

5. Kawhi Leonard, San Antonio Spurs 93,3 prósent

 



Flestar tvennur:

1. Russell Westbrook,Oklahoma City Thunder  12

1. James Harden, Houston Rockets 12

1. Hassan Whiteside, Miami Heat 12

4. Dwight Howard, Atlanta Hawks 11

5. Andre Drummond,Detroit Pistons 10

Flestar þrennur:

1. Russell Westbrook,Oklahoma City Thunder  5

2. James Harden, Houston Rockets 3

3. LeBron James, Cleveland Cavaliers 2

4. Giannis Antetokounmpo, Milwaukee Bucks 1

4. Julius Randle, Los Angeles Lakers 1

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×