Körfubolti

Myndbönd sem sýna af hverju allir í NBA elskuðu Craig Sager

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Craig Sager.
Craig Sager. Vísir/Getty
NBA-deildin í körfubolta missti góðan mann í gær þegar fréttamaðurinn Craig Sager féll frá eftir harða baráttu við krabbamein.

Leikmenn, þjálfarar og aðrir tengdir NBA-deildinni hafa minnst þessa merka manns síðan að fréttir bárust af því í gær að hann væri allur.

Craig Sager var þekktur fyrir litríkan fatasmekk og skemmtileg viðtöl við bestu körfuboltamenn heims í áratugi. Hann var elskaður og dáður og myndaði sterk sambönd við alla sem hann átti samskipti við.

Sager háði mikla baráttu við krabbamein eftir að hann greindist fyrir tveimur árum en hann snéri margsinnis aftur í starf sitt á hliðarlínunni þótt að mikið hafi reynt á hann vegna veikindanna og krabbameinsmeðferðarinnar.

NBA-deildin og TNT-sjónvarpsstöðin helguðu dagskrá sína minningu Craig Sager í gær og leikmenn, gamlir og nýir, hafa vottað Sager virðingu sína með fallegum orðum eða fallegum sögum.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur af myndböndum um Craig Sager og þar fá menn góða mynd af því af hverju allir í NBA elskuðu Craig Sager.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×