Glamour

,,Ég elska svart nælon þessa dagana."

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Miuccia Prada, yfirhönnuður tískuhússins Prada, segist vera gjörsamlega heltekin af svörtu nælon-efni þessa dagana, í samtali við Vogue. 

Herralínan fyrir veturinn 2018 var sýnd í Mílanó í gær, og var hún mjög fjölbreytt og skemmtileg. Sýningin byrjaði á flíkum úr þessu umtalaða nælon-efni, jökkum, buxum, töskum og vestum. Eftir því sem leið á sýninguna urðu flíkurnar fjölbreyttari og skrautlegri, og varð mikið um mynstur. Efni eins og stíft leður, og nælon-anorakkar voru einnig mjög áberandi. 

Inn á milli komu inn kvenfyrirsætur, sem gefur okkur kannski smá hugmynd um hvernig kvenlínan þeirra verður fyrir næsta vetur. Við bíðum spenntar eftir Prada á tískuvikunni í Febrúar.



×