Galatasaray í Evrópudeildina þrátt fyrir tap í stórskemmtilegum leik Anton Ingi Leifsson skrifar 11. desember 2018 19:47 Úr leiknum í Tyrklandi í kvöld. vísir/getty
D-riðlinum er lokið í Meistaradeild Evrópu en eftir frábæran leik í Tyrklandi vann Porto 3-2 sigur á Galatasaray. Í hinum leiknum vann Schalke 1-0 sigur á Lokomotiv Moskvu. Fyrir leiki kvöldsins voru Porto og Schalke komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en Galatasaray og Lokmotiv voru í baráttunni um sætið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Galatasaray fékk færin til að komast yfir gegn Porto á heimavelli en á sautjándu mínútu skoraði Felipe og kom Porto yfir. Á 42. mínútu tvöfaldaði Moussa Marega forystuna af vítapunktinum. Fyrir leikhlé dæmdi Alexey Kulbakov, dómari leiksins, sína aðra vítaspyrnu en nú fyrir Galatasaray sem minnkaði muninn á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Gestirnir náðu aftur tveggja marka forystu er Sergio Oliveira kom þeim í 3-1 á 57. mínútu en átta mínútum síðar minnkaði Eren Dierdiyok metin fyrir Tyrkina. Þeir fengu gullið tækifæri til að jafna metin tuttugu mínútum fyrir leikslok en önnur vítaspyrna Sofiane Feghouli í leiknum fór nú í slána og niður. Aldrei inn fyrir og lokatölur 3-2 sigur. Eina mark leiksins í Þýskalandi kom í uppbótartíma en það gerði Alessandro Schoepf og tryggði Schalke 1-0 sigur. Porto endar á toppi riðilsins með sextán stig, Schalke með ellefu, Galatasaray með fjögur og Lokomotiv þrjú.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira