Vann Íslandsmeistaratitil sem þjálfari eins liðs og leikmaður annars á sama deginum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. maí 2019 15:45 Sveinbjörn Jóhannesson í leik með Blikum í Domino´s deildinni í vetur. Vísir/Daníel
Blikar verða ekki tvöfaldir Íslandsmeistarar á hverjum degi í körfuboltanum en sunnudagurinn 19. maí 2019 er einn af þeim stóru í körfuboltasögu félagsins. Unglingaflokkur karla og 10. flokkur karla tryggðu sér báðir Íslandsmeistaratitla í Röstinni í Grindavík í gær. Sveinbjörn Jóhannesson átti mikinn þátt í báðum þessum titlum. Hann er nefnilega þjálfari 10. flokks strákanna og lykilmaður í unglingaflokknum. Sveinbjörn gerði meira en að spila unglingaflokksleikinn því hann var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins. 10. flokkurinn vann fyrst 59-55 sigur á Stjörnunni þar sem frábær annar leikhluti (20-8) lagði grunninn að sigrinum. Arnar Freyr Tandrason skoraði 26 stig, tók 10 fráköst og var valinn besti maður leiksins. Unglingaflokkurinn vann síðan mjög óvæntan sigur á Njarðvíkingum. Njarðvíkingar höfðu unnið alla leiki sína á tímabilinu en Blikar höfðu betur í úrslitaleiknum og unnu 81-76. Sveinbjörn Jóhannesson átti mjög góðan leik í úrslitaleiknum með 14 stig, 9 fráköst, 5 stoðsendingar og 2 varin skot. Hann hitti úr 5 af 7 skotum sínum. Þetta er í fyrsta sinn sem Breiðablik verður Íslandsmeistari í unglingaflokki karla og einnig í fyrsta sinn sem Breiðablik verður Íslandsmeistari í 10. flokki karla. Breiðablik vann 7.flokk karla árið 2006, 9. flokk karla árið 2008 og 8. flokk karla árið 2018. Blikar hafa einnig unnið minnibolta 11 ára fjórum sinnum eða 2002, 2003, 2005 og 2007. Eins og sjá má á þessu þá er þetta í fyrsta sinn sem Blikar vinna tvo Íslandsmeistaratitla í yngri flokkum karla í körfubolta á sama tímabili og þeir komu báðir í hús á sama degi.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira