Við vissum að við myndum geta skorað auðveldlega Árni Jóhannsson skrifar 7. febrúar 2022 21:45 Pétur Ingvarsson þjálfari Breiðabliks var ánægður með sigurinn fyrst og fremst á móti Tindastól Hulda Margrét Breiðablik náði að fylgja stór sigrinum á KR eftir með því að leggja Tindastól á heimavelli fyrr í kvöld í leik sem var hluti af 14. umferð Subway deildar karla. Blikar náðu að spila sinn leik og unnu 107-98 sigur sem að kemur þeim enn nær því að komast í úrslitakeppnina. Breiðablik náði að fylgja stór sigrinum á KR eftir með því að leggja Tindastól á heimavelli fyrr í kvöld í leik sem var hluti af 14. umferð Subway deildar karla. Blikar náðu að spila sinn leik og unnu 107-98 sigur sem að kemur þeim enn nær því að komast í úrslitakeppnina. Þjálfari Blika, Pétur Ingvarsson var mjög ánægður með að hafa náð í sigurinn fyrst og fremst þegar hann var spurður að því hvað hann hafi verið ánægðastur með í leik sinna manna. „Ég er ánægður með sigurinn fyrst og fremst. Kaninn okkar [Samuel Prescott] er ekki með og tveir leikmenn losnuðu úr einangrun bara í hádeginu. Þannig að þetta var smá óvissu leikur því við vissum ekki hvort að honum yrði frestað. Ég er bara mjög ánægður með að hafa náð að klára þetta allir lifandi.“ Blaðamaður var hrifinn af því hvernig Blikar spiluðu varnarleik sinn í kvöld og spurði hvort að þetta væri með betri varnarleikjum sem liðið hans hefur sýnt af sér í vetur. „Jú jú svo sem. Þeir eru hörkugott hraðaupphlaups lið. Við náum að skora okkar stigafjölda og þá erum við í ágætis málum. Ég hef nú sagt að Valur sé óskilvirkasta sóknarlið deildarinnar en Tindastóll er óskilvirkasta varnarlið deildarinnar þannig að við vissum að við myndum geta skorað auðveldlega. Planið gekk ágætlega upp“, sagði Pétur með bros á vör. Með sigrinum í kvöld komust Blikar í 12 stig og jafnaði þar með ÍR að stigum í 8. og 9. sæti en með leik til góða á Breiðhyltinga. Þeir eru einnig komnir með innbyrðisviðureignina gegn Tindastól sem eru tveimur stigum fyrir ofan Blika og ÍR. Pétur var því spurður hvort Blikar væru ekki frekar að horfa í úrslitakeppnina en að bjarga sér frá falli. „Eru ekki allir að horfa á úrslitakeppnina. Ég veit að ÍR og KR eru líka að stefna þangað og Vestri og Þór eru að reyna að narta í hælana á okkur. Þetta er bara hörkudeild og fullt af hörku liðum og við tökum bara einn leik í einu. Við eigum leik við Grindavík á föstudaginn og við verðum að vera tilbúnir í það.“ Að lokum var Pétur spurður út í stöðuna á Samuel Prescott og sagði hann að hann yrði líklega ekki með á móti Grindavík á föstudaginn en hann ætti við vöðvatognun að stríða en hún væri ekki alvarleg. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Subway-deild karla Breiðablik Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Breiðablik náði að fylgja stór sigrinum á KR eftir með því að leggja Tindastól á heimavelli fyrr í kvöld í leik sem var hluti af 14. umferð Subway deildar karla. Blikar náðu að spila sinn leik og unnu 107-98 sigur sem að kemur þeim enn nær því að komast í úrslitakeppnina. Þjálfari Blika, Pétur Ingvarsson var mjög ánægður með að hafa náð í sigurinn fyrst og fremst þegar hann var spurður að því hvað hann hafi verið ánægðastur með í leik sinna manna. „Ég er ánægður með sigurinn fyrst og fremst. Kaninn okkar [Samuel Prescott] er ekki með og tveir leikmenn losnuðu úr einangrun bara í hádeginu. Þannig að þetta var smá óvissu leikur því við vissum ekki hvort að honum yrði frestað. Ég er bara mjög ánægður með að hafa náð að klára þetta allir lifandi.“ Blaðamaður var hrifinn af því hvernig Blikar spiluðu varnarleik sinn í kvöld og spurði hvort að þetta væri með betri varnarleikjum sem liðið hans hefur sýnt af sér í vetur. „Jú jú svo sem. Þeir eru hörkugott hraðaupphlaups lið. Við náum að skora okkar stigafjölda og þá erum við í ágætis málum. Ég hef nú sagt að Valur sé óskilvirkasta sóknarlið deildarinnar en Tindastóll er óskilvirkasta varnarlið deildarinnar þannig að við vissum að við myndum geta skorað auðveldlega. Planið gekk ágætlega upp“, sagði Pétur með bros á vör. Með sigrinum í kvöld komust Blikar í 12 stig og jafnaði þar með ÍR að stigum í 8. og 9. sæti en með leik til góða á Breiðhyltinga. Þeir eru einnig komnir með innbyrðisviðureignina gegn Tindastól sem eru tveimur stigum fyrir ofan Blika og ÍR. Pétur var því spurður hvort Blikar væru ekki frekar að horfa í úrslitakeppnina en að bjarga sér frá falli. „Eru ekki allir að horfa á úrslitakeppnina. Ég veit að ÍR og KR eru líka að stefna þangað og Vestri og Þór eru að reyna að narta í hælana á okkur. Þetta er bara hörkudeild og fullt af hörku liðum og við tökum bara einn leik í einu. Við eigum leik við Grindavík á föstudaginn og við verðum að vera tilbúnir í það.“ Að lokum var Pétur spurður út í stöðuna á Samuel Prescott og sagði hann að hann yrði líklega ekki með á móti Grindavík á föstudaginn en hann ætti við vöðvatognun að stríða en hún væri ekki alvarleg. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deild karla Breiðablik Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira