Kauphöllin
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 78 ›
Verðlagning flestra félaga komin undir langtímameðaltal eftir miklar lækkanir Hlutabréfaverð hérlendis og alþjóðlega hefur lækkað skarpt á einu ári. Sjóðstjóri segir að V/H hlutfall flestra félaga á Aðallista í Kauphöllinni sé komið undir langtímameðaltal, en flest fyrirtækin hafa lækkað talsvert á þennan mælikvarða sem gefur til kynna að þau séu ódýrari en fyrir einu ári, samkvæmt samantekt Innherja. Innherji 23.10.2022 12:01
Fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði fara með rangt mál Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttir þingmann Viðreisnar ranglega halda því fram að hann hafi lengi borið ábyrgð á málefnum ÍL-sjóðs. Hið rétta sé að málið hafi komið í hans hlut árið 2020 og hann sé að leggja fram góða lausn, sem geti sparað tugi milljarða, nái tillagan fram að ganga. Innlent 23.10.2022 10:53
VÍS hefur minnkað vægi skráðra hlutabréfa um nærri þriðjung Tryggingafélagið VÍS hefur á síðustu misserum minnkað verulega um stöður sínar í skráðum hlutabréfum í Kauphöllinni samtímis versnandi árferði á hlutabréfamörkuðum. Tvær stærstu fjárfestingareignir félagsins eru í dag eignarhlutir í óskráðum félögum. Innherji 22.10.2022 14:18
Fjármálaráðherra hafi „kallað fram óþarfa óvissu á markaði“ Framkvæmdastjóri eins stærsta lífeyrissjóðs landsins, sem eru langsamlega stærstu eigendur krafna á hendur ÍL-sjóði, gagnrýnir harðlega tímasetningu Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti tillögur sínar um hvernig gera megi upp eignir og skuldir sjóðsins eftir lokun markaða í gær. Ávinningur ríkissjóðs af aðgerðunum muni jafnframt á móti þýða tap fyrir lífeyrissjóði. Innherji 21.10.2022 16:04
Óvissa um uppgjör ÍL-sjóðs setur „allan skuldabréfamarkaðinn í uppnám“ Tillögur fjármálaráðherra um hvernig leysa megi upp ÍL-sjóð voru „nokkuð óvænt útspil“ en verði það gert á grundvelli svonefndrar einfaldrar ábyrgðar ríkissjóðs, þar sem tæknilega er hægt að greiða upp skuldabréf sjóðs á pari í dag frekar en yfir líftíma þeirra allt til ársins 2044, mun það þýða „umtalsvert“ tap fyrir þá sem halda á bréfunum, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði. Langsamlega stærstu eigendur skuldabréfanna eru lífeyrissjóðir. Innherji 21.10.2022 13:31
Brim fjárfestir í Polar Seafood í Danmörku fyrir 12 milljarða Íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi um kaup á hlutabréfum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S fyrir 625 milljónum danskra króna, um 12 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 21.10.2022 13:01
Lífeyrissjóðir þurfa að „taka á sig högg“ vegna slita á ÍL-sjóði Fá sjónarhóli ríkisins er skiljanlegt að vilja leysa upp ÍL-sjóð og stöðva þá blæðingu úr ríkisfjármálunum vegna hans sem annars er fyrirsjáanleg næstu tvo áratugina. Lánardrottnar ÍL-sjóðs, að langstærstum hluta lífeyrissjóðir en einnig verðbréfasjóðir, fjármálafyrirtæki og einstaklingar, munu þurfa að taka á sig högg hvort sem gengið verður til samninga um uppgjör skuldanna eða sjóðnum slitið einhliða af ríkinu í kjölfar lagasetningar. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Innherji 21.10.2022 12:04
Farþegatekjur Icelandair 54 milljarðar og aldrei verið meiri á einum fjórðungi Icelandair skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) upp á 92,7 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 12,3 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um 11,2 milljarða frá sama tímabili í fyrra. Forstjóri flugfélagsins segir að með því að skila svo góðu uppgjöri á þessum tímapunkti á grundvelli sterkrar tekjumyndunar sýni „augljóslega að viðskiptalíkan félagsins sé að sanna gildi sitt.“ Innherji 20.10.2022 16:21
Jón Skaftason nýr stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, forsvarsmaður Gavia Invest, er nýr stjórnarformaður Sýnar. Þrír af fimm stjórnarmönnum eru hluti af hópi einkafjárfesta sem hafa eignast stóran hlut í fyrirtækinu. Hluthafafundur fór fram í morgun. Viðskipti innlent 20.10.2022 12:24
Miklar verðhækkanir frá birgjum Haga setur „pressu á framlegð“ Forstjóri Haga sagði að það séu miklar og stöðugar verðhækkanir frá heildsölum og framleiðendum. „Enn sem komið er hefur ekkert borið á lækkunum frá birgjum,“ sagði hann. Það sé enda mikil verðbólga alþjóðlega. Innherji 20.10.2022 11:51
Sækir yfir tvo milljarða til íslenskra fjárfesta fyrir skráningu á markað Málmleitarfyrirtækið Amaroq Minerals, sem hefur meðal annars uppi stórtæk áform um gullvinnslu á Grænlandi, hefur klárað hlutafjáraukningu frá breiðum hópi íslenskra fjárfesta og sjóða í lokuðu hlutafjárútboði sem hefur staðið yfir síðustu daga samtímis erfiðum aðstæðum á mörkuðum. Í kjölfarið verður félagið skráð á markað á núverandi ársfjórðungi í Kauphöllinni hér á landi. Innherji 19.10.2022 14:30
Áformar að styrkja fjárhagsstöðuna eftir helmingslækkun á Marel Eyrir Invest, langsamlega stærsti hluthafi Marels, vinnur nú að því með ráðgjöfum að styrkja eiginfjárstöðu sína frekar þar sem til greina kemur að fá inn nýtt hlutafé í félagið, samkvæmt heimildum Innherja. Stjórnarformaður fjárfestingafélagsins segir að verið sé að „skoða fjármögnun“ Eyris en telur að sama skapi að hlutabréfaverð Marels sé búið að lækka „óeðlilega“ mikið að undanförnu. Innherji 19.10.2022 07:04
Verðmat Ölgerðarinnar hækkaði um níu prósent eftir firnasterkan ársfjórðung Verðmat á Ölgerðinni hækkar um níu prósent meðal annars vegna þess að tekjuvöxtur var langt umfram væntingar á síðasta ársfjórðungi eftir firnasterkt uppgjör. Verðmat Jakobsson hljóðar nú upp á 13,7 krónur á hlut og er 26 prósent yfir markaðsgengi. Innherji 18.10.2022 12:01
Innlausnir í hlutabréfasjóðum drifnar áfram af útflæði fjárfesta hjá Akta Meirihluti stærstu hlutabréfasjóða landsins hafa horft upp á hreint útflæði fjármagns á árinu samhliða því að fjárfestar flýja áhættusamari eignir á tímum þegar óvissa og miklar verðlækkanir hafa einkennt hlutabréfamarkaði. Úttekt Innherja leiðir í ljós að innlausnir á fyrri árshelmingi voru einkum drifnar áfram af sölu hlutabréfafjárfesta hjá stærsta sjóðnum í stýringu Akta. Innherji 18.10.2022 07:01
Stjórnarformaðurinn hættur hjá Klöppum Linda Björk Ólafsdóttir hefur tilkynnt um úrsögn sína úr stjórn Klappa grænna lausna og hefur hún þegar tekið gildi. Linda Björk var formaður stjórnar félagsins. Viðskipti innlent 17.10.2022 11:44
Reynir reynir ekki aftur við stjórnarsæti Reynir Grétarsson, aðaleigandi Gavia Invest, ætlar ekki aftur að bjóða sig fram til stjórnar Sýnar þegar kosið verður á ný í næstu viku. Reynir náði ekki kjöri er kosið var fyrr í haust. Viðskipti innlent 15.10.2022 14:34
Eignamarkaðir ættu að njóta þess að Ísland sé í öfundsverðri stöðu Sjóðstjóri fjárfestingasjóðsins Algildi segist ekki vera „mjög bjartsýnn“ á erlenda eignamarkaði um þessar mundir. Staðan hérlendis sé mun betri. Ísland sé í öfundsverðri stöðu og því ætti eignamörkuðum hérlendis að vegna betur en margra annarra landa sem standi verr að vígi. Innherji 15.10.2022 11:00
Gangi ekki að lykilstarfsmanni sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að það gangi ekki að framkvæmdastjóri fjármála fyrirtækisins sé meinaður aðgangur að tilteknum fjárhagslegum og rekstrarlegum upplýsingum fyrirtækisins, líkt og raunin er vegna fjölskyldutengsla framkvæmdastjórans við stjórnarformann Sýnar. Viðskipti innlent 13.10.2022 21:07
Hættir við framboð í stjórn Sýnar vegna afarkosta OR Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar, hefur dregið framboð sitt til stjórnar félagsins til baka. Hún segir ástæðuna vera afarkosti sem OR setti eiginmanni hennar vegna meintra hagsmunaárekstra í tengslum við stjórnarsetu hennar. Viðskipti innlent 13.10.2022 20:26
30 prósenta vöxtur á milli ára hjá Iceland Spring Framleiðsla á vatninu Iceland Spring jókst um 30 prósent á milli ára á fyrri helmingi ársins. Framleiddum einingum fjölgaði úr 12 milljónum á fyrri helmingi ársins í fyrra í 16 milljónir á fyrri helmingi ársins í ár. Þetta sagði forstjóri Ölgerðarinnar á kynningarfundi þegar uppgjör fyrirtækisins var kynnt eftir lok markaðar í gær. Innherji 12.10.2022 14:25
Síminn braut ekki samkeppnislög með sölu enska boltans Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæða sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport, í svonefndum Heimilispakka. Viðskipti innlent 12.10.2022 10:53
Fordæmalausar verðhækkanir frá birgjum Ölgerðarinnar Ölgerðinni berast tilkynningar um verðhækkanir frá erlendum birgjum „í gríð og erg“. Þær eru „fordæmalausar og hlaupa stundum á tugum prósenta.“ Þetta sagði forstjóri fyrirtækisins á uppgjörsfundi eftir lokun markaða í gær þegar afkoman á fyrri helmingi ársins var kynnt og nefndi að verðhækkanirnar myndu leiða út í verðlag. Innherji 12.10.2022 10:47
Bandaríski risinn Vanguard stækkar stöðu sína í Arion Sjóðastýringarfélagið Vanguard, sem keypti sig inn í fimmtán íslensk fyrirtæki í Kauphöllinni um miðjan síðasta mánuð, hefur á síðustu dögum stækkað nokkuð eignarhlut sinn í Arion banka. Fimm vísitölusjóðir í stýringu Vanguard eru núna komnir í hóp með tuttugu stærstu hluthöfum íslenska bankans og er félagið um leið orðið stærsti einstaki erlendi fjárfestirinn í eigendahópnum. Innherji 12.10.2022 09:01
Sýn þurfi að bæta reksturinn „enn meira til að skila ásættanlegri“ afkomu Þótt tekjur Sýnar hafi verið að aukast og stjórnendur séu að ná betri tökum á rekstrarkostnaði fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins þá er ljóst að það þarf að bæta reksturinn „enn meira til að félagið skili ásættanlegri“ afkomu, að sögn hlutabréfagreinenda, sem mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í félaginu að svo stöddu. Innherji 11.10.2022 12:01
Einungis þrjú fyrirtæki hækkuðu í virði í september Virði nítján fyrirtækja á aðallista Kauphallarinnar lækkaði í september. Vísitala Kauphallarinnar í heild sinni lækkaði um 8,3 prósent sem er það næst mesta yfir heilan mánuð á árinu. Mesta lækkunin var hjá Eimskip. Viðskipti innlent 11.10.2022 09:57
Sniðugt að greiða niður skuldir áður en fjárfest verði í listaverkum Lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands segir sniðugt að greiða niður lán og skuldir áður en farið verði í óhefðbundnari fjárfestingar. Mikilvægast sé þó að fjárfesta í sjálfum sér enda lífið stutt og fólk eigi að reyna að láta drauma sína rætast. Innlent 10.10.2022 22:38
Vísbendingar um að markaðurinn hafi „tekið alltof skarpa dýfu“ Staðan á hlutabréfamarkaði hefur umturnast á síðustu tólf mánuðum. Fyrir um ári mátti sjá merki þess að markaðurinn væri búinn að ofrísa, meðal annars út frá þróun peningamagns í umferð, en núna eru vísbendingar um hið gagnstæða og verðmöt gefa til kynna að meirihluti félaga í Kauphöllinni séu verulega vanmetin, að sögn hlutabréfagreinenda. Innherji 10.10.2022 18:01
Enn til skoðunar að skrá Íslandshótel í Kauphöll Það er enn til skoðunar að skrá Íslandshótel, stærstu hótelkeðju landsins, í Kauphöllina, þrátt fyrir að miklar lækkanir á hlutabréfamörkuðum. Þetta segir Davíð T. Ólafsson, forstjóri samstæðunnar, aðspurður í samtali við Innherja. „Það hefur ekki breyst.“ Innherji 10.10.2022 16:00
Útgreiðslur skráðra félaga til fjárfesta að nálgast um 180 milljarða Á sama tíma og hlutabréfafjárfestar eru að upplifa sitt versta ár á mörkuðum frá fjármálahruninu 2008 þá er allt útlit fyrir að útgreiðslur skráðra félaga til hluthafa í ár meira en tvöfaldist frá því í fyrra. Þar munar mikið um væntanlegar greiðslur til hluthafa Símans og Origo á næstu vikum eftir sölu félaganna á stórum eignum. Innherji 10.10.2022 10:30
Líklegt að megnið af söluverði Tempo verði greitt til hluthafa Origo Líklega verður megnið af söluverði Origo á Tempo greitt til hluthafa. Það er þó ekki hægt að útiloka að félagið nýti fjármunina til að fjárfesta í öðrum félögum eða sameinist. Ef fjárhæðin verður öll greitt út til hluthafa verður Origo langminnsta félagið á Aðallista Kauphallarinnar og markaðsvirðið um sex til tíu milljarðar króna. Innherji 8.10.2022 14:00