Körfubolti
165 166 167 168 169 170 171 172 173 … 216 ›
LA Clippers - Utah í beinni í nótt Þrettán leikir eru á dagskrá í NBA deildinni í kvöld og verður leikur LA Clippers og Utah Jazz sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 3:30 í nótt. Þá bíður meistara Miami það verðuga verkefni að stöðva 11 leikja sigurgöngu Phoenix Suns og verða meistararnir án Dwyane Wade sem missir af leiknum eftir harkalega heimsókn til tannlæknis. Körfubolti 13.12.2006 22:37
Paul Arizin látinn Bandaríska körfuboltagoðsögnin Paul Arizin sem fyrir nokkrum árum var útnefndur einn af 50 bestu leikmönnum í sögu NBA deildarinnar, lést á heimili sínu í Philadelphia gærkvöldi, 78 ára að aldri. Arizin var kosinn besti leikmaður deildarinnar árið 1952 og var einn fyrsti maðurinn til að notast við stökkskotið á sínum tíma, en það er nú undirstöðuatriði allra körfuboltaiðkenda. Körfubolti 13.12.2006 22:17
Lakers lagði Houston LA Lakers vann góðan útisigur á Houston Rockets í NBA deildinni í nótt 102-94, en bæði lið voru án lykilmanna. Houston var án Tracy McGrady sem verður frá um óákveðinn tíma vegna bakmeiðsla, en Lamar Odom meiddist á hné hjá Lakers og verður líklega frá í um mánuð. Kobe Bryant skoraði 23 stig fyrir Lakers en Yao Ming var með 26 fyrir Houston. Körfubolti 13.12.2006 13:57
Iverson sagði nei við Charlotte Kapphlaupið um Allen Iverson er nú komið á fullt í NBA deildinni og heimildir frá Bandaríkjunum herma að nú sé eitt félag formlega út úr myndinni í þeim efnum. Philadelphia er sagt hafa samþykkt tilboð frá Charlotte Bobcats í leikmanninn, en þangað vildi hann ekki fara og því varð ekkert af þeim viðskiptum. Körfubolti 12.12.2006 20:51
Paul Pierce brotlenti á fæti Wayne Rooney Framherjinn Paul Pierce hjá Boston Celtics var nálægt því að komast í heimsfréttirnar í gær þegar hann kastaði sér á eftir bolta inn í áhorfendastæðin á leik New York og Boston í NBA deildinni, en þá lenti hann á ristinni á knattspyrnumanninum Wayne Rooney sem sat ásamt unnustu sinni og horfði á leikinn. Körfubolti 12.12.2006 21:58
Sloan kominn í úrvalshóp þjálfara Jerry Sloan, þjálfari Utah Jazz í NBA deildinni, komst í gær í sannkallaðan úrvalshóp þjálfara þegar lið hans burstaði Dallas á heimavelli sínum í Salt Lake City. Þetta var þúsundasti sigurleikur Sloan á ferlinum en aðeins fjórir aðrir þjálfarar hafa náð þeim áfanga. Körfubolti 12.12.2006 21:00
Gamli boltinn notaður á ný í janúar David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú viðurkennt ósigur sinn og staðfesti í gær að gamli leðurboltinn verði tekinn fram að ný þann 1. janúar næstkomandi eftir að allar helstu stjörnur deildarinnar lýstu yfir óánægju sinni með nýja gerviefnaboltann. Körfubolti 12.12.2006 15:38
Ellefu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix vann í nótt ellefta leik sinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Orlando á útivelli 103-89. Amare Stoudemire skoraði 30 stig fyrir Phoenix í leiknum. Þá vann Utah auðveldan sigur á Dallas 101-79 og færði Jerry Sloan þjálfara þúsundasta sigurleikinn á ferlinum. Carlos Boozer skoraði 31 stig og hirti 11 fráköst fyrir Utah, en Dirk Nowitzki skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst fyrir Dallas. Körfubolti 12.12.2006 14:32
Orlando - Phoenix í beinni á miðnætti Það má reikna með fyrsta flokks skemmtun á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld þar sem leikur kvöldsins verður viðureign Orlando Magic og Phoenix Suns. Leikurinn hefst á miðnætti og fróðlegt verður að sjá hvernig heitasta liðinu í NBA í dag, Phoenix, vegnar gegn ungu og skemmtilegu liði Orlando. Körfubolti 11.12.2006 22:20
LA Lakers lagði San Antonio Los Angeles Lakers vann í nótt góðan sigur á San Antonio Spurs 106-99 á heimavelli sínum Staples Center í Los Angeles, en lið Spurs hafði unnið fjóra leiki í röð. Kobe Bryant skoraði 34 stig fyrir Lakers og Lamar Odom skoraði 18 stig, hirti 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Manu Ginobili skoraði 23 stig af bekknum fyrir Spurs. Körfubolti 11.12.2006 05:04
Nelson náði 1200. sigrinum Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors í NBA deildinni, varð í nótt annar þjálfarinn í sögu NBA deildarinnar til að vinna 1200 leiki á ferlinum þegar lið hans lagði New Orleans 101-80. Aðeins Lenny Wilkens hefur unnið fleiri leiki á þjálfunarferlinum en hann á að baki 1332 sigra og er fyrir nokkru hættur að þjálfa. Körfubolti 10.12.2006 14:27
Yao Ming kláraði Washington Kínverski risinn Yao Ming fór á kostum og skoraði 23 af 38 stigum sínum í fjórða leikhluta þegar Houston lagði Washington 114-109 á útivelli í NBA deildinni í nótt. Hann hirti auk þess 11 fráköst og varði 6 skot. Gilbert Arenas skoraði 41 stig fyrir Washington í þessum fjöruga leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. Körfubolti 10.12.2006 14:04
Níu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Boston á útivelli 116-111. Shawn Marion skoraði 29 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Paul Pierce skoraði 36 stig fyrir Boston. Körfubolti 9.12.2006 15:54
Sacramento - Miami á Sýn í kvöld Leikur Sacramento Kings og Miami Heat frá því liðna nótt verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:25 eftir miðnætti. Þá verður leikur Milwaukee og Memphis sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt svo það er nóg um að vera á skjánum fyrir körfuboltaáhugamenn í kvöld. Körfubolti 8.12.2006 21:18
Iverson vill fara frá Philadelphia Skorunarmaskínan Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í NBA virðist nú loksins vera búinn að fá nóg af því að tapa og nú hafa þær fréttir lekið út í fjölmiðla að Iverson hafi formlega farið fram á það við forseta félagsins að fá að fara frá félaginu. Körfubolti 8.12.2006 18:03
Skoraði 27 stig með vinstri Körfuboltagoðsögnin Larry Bird sem lék með Boston Celtics á árum áður varð fimmtugur í gær og í tilefni af því var heill dagur helgaður ferli þessa frábæra íþróttamanns á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Þar sögðu margir af félögum hans og keppinautum skemmtilegar sögur af honum. Körfubolti 8.12.2006 15:22
Þetta er besti leikur sem ég hef séð Leikur New Jersey Nets og Phoenix Suns í NBA deildinni í nótt er þegar kominn í sögubækurnar, en gestirnir frá Phoenix höfðu sigur 161-157 eftir tvíframlengdan leik. Þetta er fjórða hæsta stigaskor í einum leik í sögu NBA deildarinnar og var hann í járnum allan tímann. Körfubolti 8.12.2006 05:27
Allt vitlaust í Belgrad (myndband) Fjórir stuðningsmenn og tveir lögreglumenn slösuðust þegar óeirðir brutust út fyrir leik Rauðu Stjörnunnar og PAOK Thessaloniki í körfubolta í fyrrakvöld. Átökin brutust út þegar stuðningsmenn erkifjenda heimaliðsins mættu í höllina og ætluðu að styðja við bakið á PAOK. Kveikt var á blysum í stúkunni og öllu lauslegu kastað í allar áttir eins og sjá má að meðfylgjandi myndskeiði. Körfubolti 7.12.2006 17:24
Loks vann Washington á útivelli Washington Wizards vann sinn fyrsta sigur á útivelli á leiktíðinni í NBA í nótt þegar liðið sótt New York Knicks heim og vann 113-102. Gilbert Arenas skoraði 38 stig og Antawn Jamison bætti við 33 stigum fyrir Washington, en Eddy Curry skoraði 22 stig og hirti 11 fráköst fyrir New York. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós í leikjum næturinnar. Körfubolti 7.12.2006 14:40
Cleveland - Toronto í beinni á miðnætti Leikur Cleveland Cavaliers og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpssstöðinni á Fjölvarpinu á miðnætti í kvöld. Cleveland er hörkulið með LeBron James í fararbroddi, en liðinu hefur gengið afleitlega gegn veikari liðum deildarinnar það sem af er í vetur. Körfubolti 6.12.2006 22:44
Stern viðurkennir mistök David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur loks viðurkennt að hann hafi gert mistök þegar hann ákvað að taka nýja keppnisboltann í notkun í deildinni í haust. Boltinn er úr gerfiefni og kom í stað gamla leðurboltans, en flest allar stórstjörnurnar í deildinni hafa gagnrýnt boltann harðlega og segja hann ómögulegan. Körfubolti 6.12.2006 16:15
Nash gaf 20 stoðsendingar í sigri Phoenix Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Phoenix Suns vann sinn 7. leik í röð með því að leggja Sacramento af velli 127-102 og hefur liðið heldur betur rétt úr kútnum eftir tap í 5 af fyrstu 6 leikjum sínum í vetur. Leandro Barbosa skoraði 26 stig fyrir Phoenix og Steve Nash átti 20 stoðsendingar. Mike Bibby skoraði 21 stig fyrir Sacramento. Körfubolti 6.12.2006 13:57
New Jersey - Dallas í beinni í kvöld Leikur New Jersey Nets og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Dallas hafði unnið 12 leiki í röð áður en liðið tapaði fyrir Washington í nótt og því verður áhugavert að sjá hvort liðið nær að rétta úr kútnum gegn Nets í kvöld. Leikurinn hefst klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Körfubolti 5.12.2006 23:09
Washington stöðvaði Dallas Tólf leikja sigurgöngu Dallas Mavericks í NBA deildinni lauk í nótt þegar liðið tapaði fyrir Washington 106-97 á útivelli. Gilbert Arenas skoraði 38 stig fyrir Washington en Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir Dallas. Körfubolti 5.12.2006 14:22
Vince Carter var maður næturinnar Vince Carter hjá New Jersey var maður næturinnar í NBA-körfuboltanum en hann skoraði 41 stig og var maðurinn á bakvið 112-107 sigur liðs síns á Philadelphia. Þetta var það mesta sem Carter hefur skorað í einum leik í ár. Körfubolti 3.12.2006 13:04
Styttist í endurkomu Paul Gasol Spænski körfuboltamaðurinn Paul Gasol hefur hafið æfingar á nýjan leik með liði sínu Memphis Grizzlies í NBA-deildinni eftir að hafa fótbrotnað í Heimsmeistarakeppninni sem fram fór í sumar. Búist er við því að Gasol byrji að spila innan fárra vikna. Körfubolti 2.12.2006 12:47
Dallas vann 12. leikinn í röð Dallas er á miklu skriði í NBA-deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið sinn tólfta leik í röð. Fórnarlambið að þessu sinni var Sacramento - lokatölur urðu 109-90. Körfubolti 2.12.2006 11:10
Nowitzki stefnir á að vera með í kvöld Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hefur fengið grænt ljós frá læknum Dallas Mavericks að spila með liðinu gegn Sacramento Kings í kvöld, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan hálf tvö eftir miðnætti. Nowitzki fékk fingur í augað í leik á dögunum og spilaði aðeins 10 mínútur í sigri Dallas á Toronto í fyrrakvöld - en það var 11. sigurleikur liðsins í röð. Körfubolti 1.12.2006 15:53
Bryant fór hamförum gegn Utah Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt sem leið og það var Kobe Bryant hjá LA Lakers sem stal senunni eins og svo oft áður þegar hann skaut lið Utah Jazz í kaf upp á sitt einsdæmi í 132-102 sigri Lakers. Bryant skoraði 52 stig í leiknum, þar af 30 stig í þriðja leikhlutanum einum saman. Körfubolti 1.12.2006 14:45
LA Lakers - Utah Jazz í beinni í nótt Það verður mjög athyglisverður leikur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt þar sem LA Lakers tekur á móti Utah Jazz. Liðin hafa bæði byrjað leiktíðina vonum framar og situr Utah í efsta sæti deildarinnar. Körfubolti 30.11.2006 22:04