Handbolti
287 288 289 290 291 292 293 … 293 ›
Guðjón Valur með 13 mörk fyrir Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum og skoraði 13 mörk fyrir Gummersbach í dag þegar liðið tryggði sig í undanúrslit Evrópukeppni félagsliða (EHF keppninni) í handbolta þrátt fyrir tap gegn spænska liðinu Bidasoa, 30-26. Róbert Gunnarsson lék einnig með Gummersbach í dag og skoraði tvö mörk. Sport 4.3.2006 18:25
Portland sló Evrópumeistarana út Spænska liðið Portland San Antonio var nú síðdegis að slá út Evrópumeistara Barcelona í Meistaradeildinni í handbolta og tryggja sig þannig í undanúrslit keppninnar þrátt fyrir tap á Spáni, 26-23. Portland vann fyrri leikinn 25-21 og því samanlagt með einu marki. Sport 4.3.2006 17:28
Flensburg í undanúrslitin þrátt fyrir tap Þýska liðið Flensburg varð í dag fyrst liða til að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta þrátt fyrir tap gegn löndum sínum í Kiel, 31:34, í hörkuspennandi leik. Flensburg vann fyrri viðureign liðanna, 28-32 þannig að Kiel hefði þurft að skora einu marki meira í dag til að komast áfram. Staðan í hálfleik var 16-17 fyrir Kiel. Það voru íslensku dómararnir Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson sem dæmdu þennan leik. Sport 4.3.2006 15:52
Síðari leikur Barcelona og Portland í dag Klukkan 15:30 í dag mætast Barcelona og Portland San Antonio í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum meistaradeildarinnar í handbolta. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn. Portland vann fyrri leikinn með fjögurra marka mun á heimavelli sínum í Pamplóna, 25-21. Það má því búast við hörkuleik þessara frábæru handboltaliða í dag. Sport 4.3.2006 14:05
Alfreð laus frá Magdeburg Alfreð Gíslason, fyrrum þjálfari Magdeburg í Þýskalandi hefur nú fengið sig alfarið lausan undan samningi sínum við félagið og er því frjálst að taka við öðru liði þangað til hann tekur við þjálfun Gummersbach á næsta ári. Því má reikna með að Alfreð gangi til viðræðnaa við forráðamenn íslenska landsliðsins, en vitað er að Alfreð er þar efsti maður á óskalistanum.. Sport 2.3.2006 16:04
Guðjón Valur skoraði 7 mörk Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir lið sitt Gummersbach í kvöld og Róbert Gunnarsson 4, þegar liðið vann auðveldan útisigur á Wetzlar á útivelli 38-30. Róbert Sighvatsson skoraði 1 mark fyrir Wetzlar. Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk fyrir Grosswallstadt sem tapaði 27-26 fyrir Delitzsch á útivelli. Sport 1.3.2006 21:17
Flensburg lagði Kiel Flensburg vann í kvöld frækinn sigur á Kiel í fjórðungsúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta 32-28, en leikurinn fór fram á heimavelli Kiel sem er sannkölluð ljónagryfja og fáheyrt er að liðið tapi þar leik. Þetta var fyrri viðureign liðanna og hin síðari fer fram um helgina. Sport 28.2.2006 21:46
Gummersbach í góðri stöðu Þýska liðið Gummersbach er með sterka stöðu eftir fyrri leik sinn við spænska liðið Bidasoa í átta liða úrslitum EHF keppninnar í handbolta í dag, þar sem liðið sigraði 35-26. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk í leiknum og Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk. Sport 25.2.2006 20:39
Ólafur með 3 mörk í sigri Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk þegar lið hans Ciudad Real bar sigurorð af Alcobendas í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 31-28. Ciudad er eftir sem áður í þriðja sæti deildarinnar á eftir Barcelona og Portland San Antonio. Sport 23.2.2006 02:01
Róbert skoraði 7 fyrir Gummersbach Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru atkvæðamiklir fyrir lið sitt Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið skellti Dusseldorf 32-22. Róbert skoraði 7 mörk og Guðjón gerði 5. Sport 23.2.2006 01:51
Logi skoraði 3 í sigri Lemgo Logi Geirsson skoraði 3 mörk fyrir lið sitt Lemgo í Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær þegar liðið lagði Hamburg naumlega 29-28. Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað hjá Lemgo, en liðið er nú í fimmta sæti deildarinnar. Sport 22.2.2006 14:56
Bikarmeistari með Bregenz Dagur Sigurðsson, spilandi þjálfari hjá Bregenz í Austurríki, varð í gær bikarmeistari með liði sínu. Bregenz sigraði AON Fivers í úrslitaleiknum í gær, 33-27, eftir mikla törn um helgina en bikarfyrirkomulagið í Austurríki er á þann veg að 8-liða úrslit eru spiluð á föstudegi, undanúrslit á laugardegi og úrslit á sunnudegi. "Þetta var mjög sætt," sagði Dagur skömmu eftir leik, í skýjunum með að hafa unnið sinn fyrsta bikarmeistaratitil í Austurríki. Sport 19.2.2006 19:58
Jafnt hjá Minden og Flensburg Fjórir leikir fóru fram í Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en íslendingarnir létu frekar lítið að sér kveða í dag, nema þá Snorri Steinn Guðjónsson sem skoraði sex mörk fyrir Minden, þar af fjögur úr vítaköstum. Sport 19.2.2006 19:26
Dagur bikarmeistari með Bregenz Dagur Sigurðsson stýrði í dag liði sínu Bregenz til sigurs í Austurrísku bikarkeppninni en liðið lagði AON Fivers með eins marka mun í úrslitaleiknum. Sport 19.2.2006 18:11
Haukar unnu ÍBV Haukar gerðu góða ferð til Vestmannaeyja í DHL-deild karla í handbolta í dag og unnu heimamenn 34-32 og komust þar með í efsta sæti deildarinnar. Sport 18.2.2006 20:01
Magdeburg mætir Hamburg Í dag var dregið um hvaða lið mætast í undanúrslitum þýska bikarsins í handknattleik, eða final four eins og Þjóðverjar kalla það. Annarsvegar mætast Magdeburg og Hamburg og hinsvegar leikur Kiel við Kronau/Östringen sem sló Gummersbach nokkuð óvænt út úr keppninni á dögunum. Undanúrslitin fara fram fyrstu helgina í apríl. Sport 16.2.2006 15:45
Birkir Ívar til Þýskalands Landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson hefur gert tveggja ára samning við lið Lubbecke í þýsku úrvalsdeildinni, en fyrrum félagi Birkis úr Haukum, Þórir Ólafsson leikur einmitt með liðinu. Birkir klárar tímabilið hér heima með Haukum en heldur utan í sumar. Sport 16.2.2006 15:31
Gummersbach úr leik Gummersbach tapaði nokkuð óvænt fyrir Kronau/Östringen í þýsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld 36-34 eftir framlengdan leik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach, þar af 2 úr vítum og Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk. Gummersbach hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum, en missti forskotið niður í þeim síðari og tapaði loks í framlengingunni. Sport 14.2.2006 21:28
Minden skellti Kiel Snorri Steinn Guðjónsson og félagar hans í þýska úrvalsdeildarliðinu Minden gerðu sér lítið fyrir og skelltu töppliði Kiel í dag 32-30. Snorri Steinn skoraði tvö mörk í leiknum. Þá gerðu Hamburg og Dusseldorf jafntefli 27-27 þar sem Hamburg gerði tvö mörk á síðustu hálfu mínútu leiksins og tryggði sér jafntefli. Sport 12.2.2006 18:27
Óli Stefáns valinn í úrvalslið EM Ólafur Stefánsson var valinn i úrvalslið Evrópumótsins handbolta í Sviss í dag. Króatinn Ivano Balic var valinn besti maður mótsins. Auk þeirra í úrvalsliðinu eru Thierry Omeyer markvörður Frakka, Eduard Kokcharov frá Rússlandi, Rolando Urios frá Spáni, Sören Stryger frá Danmörku og Iker Romero frá Spáni. Sport 5.2.2006 18:01
Frakkar Evrópumeistarar Frakkar urðu í dag Evrópumeistarar í handbolta þegar þeir lögðu Spánverja með 8 marka mun í úrslitaleik mótsins í Zürich í Sviss, 31-23. Nikola Karabatic varð markahæstur Frakka með 11 mörk í leiknum í dag. Staðan í hálfleik var 13-17 fyrir Frakka. Þetta er í fyrsta sinn sem Frakkar hampa þessum titli. Sport 5.2.2006 17:56
Danir unnu bronsið á EM Danir tryggðu sér bronsverðlaunin á Evrópumóti landsliða í handbolta í dag þegar þeir sigruðu Króata í úrslitaleik um 3. sætið, 32-27. Lars Möller var markahæstur Dana 9 mörk. Króatar áttu aldrei mögueika gegn Dönum sem náðu mest 7 marka forystu í leiknum. Sport 5.2.2006 14:06
Danir 7 mörkum yfir gegn Króötum Króatar og Danir eigast nú við og keppa um bronsverðlaunin á Evrópumóti landsliða í handbolta og eru Danir 7 mörkum yfir í hálfleik, 16-9. Sigurvegararnir í þessum leik tryggja sér sæti á HM 2007. Klukkan 4 í dag keppa Frakkar og Spánverjar til úrslita á Evrópumótinu. Frakkar búsettir hér á landi ætla að hittast á Café Solon og fylgjast með leiknum þar. Sport 5.2.2006 13:10
Ísland mætir Svíum Íslenska landsliðið í handbolta dróst gegn Svíum í umspili um laust sæti á HM sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári en dregið var í morgun. Ljóst er að þessi dráttur er ákveðið áfall fyrir strákana okkar en leikmenn hafa títt um það talað síðan Ísland lauk keppni í 7. sæti á EM að þeir vildu síst af öllum þurfa að mæta Svíum í umspilinu. Sport 5.2.2006 11:05
Spánverjar í úrslitaleikinn - lögðu Dani Það verða Spánverjar sem leika til úrslita á EM í handbolta gegn Frökkum en heimsmeistararnir lögðu Dani í undanúrslitum nú síðdegis, 34-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Dani sem leika því um 3. sætið á mótinu gegn Króötum. Sport 4.2.2006 17:33
Frakkar í úrslit Frakkar leika til úrslita á HM í handbolta en þeir lögðu Króata í undanúrslitum í dag með 6 marka mun, 29-23. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Frakka sem mæta annað hvort Dönum eða Spánverjum í úrslitaleiknum á morgun en þau lið mætast nú kl. 16. Sport 4.2.2006 14:57
Þjóðverjar í 5. sæti Þjóðverjar höfnuðu í 5. sæti á Evrópumóti landsliða í handbolta í Sviss en þeir sigruðu Rússa í leik um sætið í dag, 32-30. Staðan í hálfleik var 18-16 fyrir Rússa. Nú eigast við Króatar og Frakkar í fyrri undanúrslitaleik mótsins og er staðan í hálfleik 12-10 fyrir Frakka. Síðar í dag mætast svo Danir og Spánverjar í hinum undanúrslitaleiknum. Sport 4.2.2006 14:04
Ólafur hrifinn af Strand Norskir fjölmiðlar halda skiljanlega ekki vatni yfir landsliðsmanninum Kjetil Strand, sem setti nýtt Evrópumótsmet í gær þegar hann skoraði 19 mörk í leiknum gegn Íslendingum í milliriðli. Á heimasíðu norska blaðsins VG er haft eftir Ólafi Stefánssyni að Strand sé nógu góður til að spila með liði í spænska eða þýska handboltanum. Sport 3.2.2006 16:08
Spilar ekki aftur fyrir Viggó Sigurðsson Vilhjálmur Halldórsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður danska liðsins Skjærn, segist aldrei ætla að spila aftur undir stjórn Viggós Sigurðssonar eftir að þeir áttu hreint ekki í skap saman á EM í Sviss. Þetta kemur fram í viðtali við staðarblað í Danmörku í dag. Sport 3.2.2006 12:02
Danir lögðu Rússa og mæta Spánverjum Danir tryggðu sér sæti í undanúrslitunum á EM í Sviss í kvöld þegar liðið lagði Rússa sannfærandi 35-28. Danska liðið mætir því Spánverjum í undanúrslitum mótsins og í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Frakkar og Króatar. Þjóðverjar og Rússar keppa um 5. sætið, en íslenska liðið hafnaði í 7. sæti á mótinu. Sport 2.2.2006 20:59