Atvinnulíf

Hvernig gott er að bregðast við óvæntum forstjóraskiptum
Það getur verið allur gangur á því hvort það er aðdragandi að því að forstjóra eða framkvæmdastjóra er skipt út.

Eigendaskipti fyrirtækja og fimm einföld ráð
Það getur verið vandasamt verk að þreifa fyrir sér sölu á fyrirtæki með tilliti til góðrar upplýsingagjafar til starfsfólks.

Fædd 1970: Kynslóðin sem er þjökuð af samviskubiti enda kennt að klára allt
„Ég er í aðra röndina mjög kröfuhörð á sjálfan mig en á hina vil ég bara gera skemmtilega hluti í lífinu,“ segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefanda, og skellihlær.

Gerir sér vonir um að einn morguninn snúsi hún ekki
Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðsstjóri Póstsins og einn eigenda visteyri.is, er ein þeirra sem heldur í vonina um að einn morguninn fari hún fram úr um leið og klukkan hringi. Og að í framhaldinu eigi hún jafnvel rólegan morgunn þar sem hún jafnvel næði að hugleiða áður en hún hendir sér í ræktina.

Jeff Bezos meðal þeirra sem skyldaði stjórnendur til að lesa bókina um árangursríka stjórnandann
„Ég viðurkenni alveg að ég hafði smá áhyggjur af því fyrst þegar að ég renndi yfir bókina með þýðingu á henni í huga, hvort hún myndi standast tímans tönn. Hið áhugaverða er að hún svo sannarlega gerir það og í raun er margt sem Drucker talar um í bókinni sem á einmitt sérstaklega vel við nú,“ segir Kári Finnsson, markaðsstjóri og hagfræðingur um bókina Árangursríki stjórnandinn sem nú er komin út.

Andlegt ofbeldi á vinnustað felur oft í sér meira skipulag en einelti
„Það eru oft óljós mörk á milli andlegs ofbeldis og eineltis á vinnustöðum og þótt færri mál komi upp á vinnustöðum þar sem líkamlegt ofbeldi á sér stað, kemur það þó fyrir,“ segir Helga Lára Haarde, ráðgjafi hjá Attentus.

„Pabbi, systir mín, kærastan og ég fórum öll að grúska“
Fjölskyldufyrirtæki varð til í Covid. Og þau stefna langt!

„Mætti halda að ég væri að fara til útlanda á hverjum morgni“
Sigþrúður Ármann, Culture & Communication Manager hjá Controlant, stjórnarformaður Exedra og stjórnarformaður Von harðfiskverkunar, segist vakna svo snemma að það mætti halda að hún væri að fara til útlanda á hverjum morgni.

Fjárhagsáhyggjur fólks hafa bein áhrif á vinnuna
Stýrivaxtahækkanir, verðbólga, greiðsluvandi fólks og erfiðleikar framundan eru allt fréttir sem hafa verið fyrirferðarmiklar í fréttum fjölmiðla undanfarið.

Trixið sem klikkar ekki: Að koma sér í gang í vinnunni
Við höfum öll upplifað það að vera mætt í vinnuna en eiga erfitt með að koma okkur í gang. Ekkert endilega vegna þess að við erum þreytt eða syfjuð, heldur einfaldlega náum við ekki að bretta þannig upp ermarnar að við keyrumst í gang.

„Hann gerir allt…. nema það sem honum finnst leiðinlegt“
Heima hjá Sigurði Pálssyni forstjóra BYKO er ófrávíkjanleg regla að allir borða saman og þá er oftar en ekki spurt „Hvað var það skemmtilegasta sem gerðist hjá þér í dag?“ Sigurður segist telja að hann fái 9 í einkunn þegar kemur að ýmsu heima fyrir, en viðurkennir að eflaust myndi eiginkonan svara spurningunni aðeins öðruvísi en hann.

Erfitt að ræða launin í vinnunni
Það er staðreynd að eitt af erfiðustu umræðuefnum fólks eru samtöl um peninga. Þessi samtöl eru oft erfið á milli hjóna, þau geta líka verið erfið á milli vina þar sem deila þarf kostnaði eða ræða kostnað.

Sjálfbærniskýrslan 2023: Verðlaunin staðfesta hvað Marel er að gera í sjálfbærnimálum
„Við erum mjög hreykin af þessum verðlaunum sem staðfesta hvað við erum að gera í sjálfbærnimálum. Það hefur líka sýnt sig að það er leitni á milli þess að standa sig vel í sjálfbærnimálum og góðs reksturs,“ segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel og formaður Nordic CEOs for a Sustainable Future, en rétt í þessu var tilkynnt að Marel er verðlaunahafi Sjálfbærniskýrslu ársins 2023.

Sjálfbærniskýrslan 2023: Fyrirtækin farin að rýna betur í sína eigin starfsemi
Á morgun verður tilkynnt hver hlýtur viðurkenninguna fyrir sjálfbærniskýrslu ársins 2023.

Ranghugmyndir um hvaða fólk notar TikTok og hvernig
„Oft er TikTok bara meðhöndlað þannig að yngsta starfsmanninum er réttur síminn og hann beðinn um að gera eitthvað sniðugt,“ segir Klara Símonardóttir framkvæmdastjóri Petmark sem nýlega hlaut hæstu einkunn í viðskiptadeild Háskólans á Bifröst það sem af er ári, fyrir BS ritgerðina sína í viðskiptafræði.

Sendur ungur til Danmerkur vegna agaleysis á Akureyri
Fyrir tveimur árum síðan kom netfataverslunin Boozt inn á íslenska markaðinn. Með látum má segja. Velti til dæmis netversluninni Asos úr sessi með markaðshlutdeild á aðeins örfáum vikum. Og samkvæmt frétt Innherja Vísis haustið 2021, versluðu Íslendingar fatnað hjá Boozt fyrir tæpan milljarð fyrsta hálfa árið. „Það ætlaði allt um koll að keyra,“ er kannski orðatiltæki sem ætti vel við hér.

Vaknar með Heimi og Gulla en dreymir um að fara í ræktina
Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish segist vakna með Heimi og Gulla á morgnana klukkan sjö, liggur þá og dormar um stund en dreymir um að vera týpan sem drífur sig fram úr og í ræktina.

Að takast á við höfnun í vinnunni
Að upplifa höfnun er ótrúlega algengt fyrirbæri. Bæði í starfi og einkalífi. Oftar en ekki er þetta höfnunartilfinning byggð á misskilningi. Eitthvað sem við ímyndum okkur sjálf, erum sannfærð um að sé rétt og túlkum rangt í samskipti eða hegðun.

Að læra af mistökum: „Loksins hætta þeir þessu kjaftæði hugsaði starfsfólkið“
Það er einstaka sinnum sem við heyrum frábærar sögur um nýsköpunarfyrirtæki sem einfaldlega ná góðu flugi strax.

Að læra af mistökum: Frumkvöðullinn gæti til dæmis samið af sér
„Það gera allir mistök. Þess vegna snúast mistök í sjálfu sér fyrst og fremst um að læra af þeim og þora að tækla hlutina, finna lausn. Í því felst mikill styrkleiki,“ segir Ellen María Bergsveinsdóttir, framkvæmdastjóri Mink Campers sporthýsanna.

Íslensk á lista Forbes: Til dæmis hægt að hjálpa lömuðum að ganga
Það er magnað að heyra Gretu Preatoni ræða starf sitt. Til dæmis þegar hún er að segja frá því hvernig hægt er að hjálpa lömuðu fólki að ganga á ný. Eða að draga úr sársauka og auka á snertifilfinningu fólks sem hefur misst útlimi. Allt með aðstoð gervigreindar og nýjustu tækni.

Stórfiskaleikur, fallin spýta, skotbolti og „yfir“ öll kvöld í Breiðholtinu
Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu heldur mest upp á þann tíma dagsins þegar eiginmaðurinn færir henni kaffi í rúmið og þau taka spjallið saman fyrir daginn. Í æsku var það kröftugur hópur krakka í Breiðholtinu sem hittist öll kvöld til að fara í útleiki eins og þeir gerðust bestir.

„Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull“
„Það er mjög áhugavert að velta fyrir sér hversu mikið hefur breyst á þeim fimmtán árum síðan ég byrjaði í þessu nýsköpunarumhverfi. Það er ekki lengur asnalegt að vera frumkvöðull eins og þótti þá. Það þykir ekki lengur furðulegt að feta þessa leið, frekar en að velja að starfa hjá rótgrónu fyrirtæki,“ segir Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri 50skills.

Forgangsröðunin verið sú að ríkið þjónustar almenning nú margfalt betur
„Lykilþættirnir hingað til hafa verið að þjónusta almenning margfalt betur en áður og einfalda líf fólks,“ segir Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem síðustu rúm þrjú árin hefur leitt þá vegferð ríkisins að gera sem flesta þjónustu rafræna.

Alltaf kaffi í rúmið og auðvitað í dúndurstuð með S.H.Draumi
Það er í nægu að snúast alla daga hjá Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR, sem er í hljómsveitinni Fjöll og að undirbúa endurkomu hljómsveitarinnar Los, að æfa sig undir átta daga hjólaferð til styrktar Umhyggju, að undirbúa frekari mótmæli við Austurvöll og almennt að finna eitthvað nýtt til að röfla yfir. Ragnar og eiginkonan byrja alltaf daginn með kaffi í rúmið.

Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“
„Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech.

Breytt viðhorf: Unga fólkið að velja nám á allt annan hátt en áður
„Við lifum á mjög merkilegum tímum. Gervigreindin mun til dæmis hafa mikil áhrif á nám og það hvernig fólk mun læra, en við erum ekki enn farin að sjá hvernig,“ segir Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Sem meðal annars heldur utan um sveinspróf í iðngreinum.

Nýsköpun í lagageiranum: Það á ekki að vera lúxus að leita réttar síns
„Ég lít á lögmennskuna sem þjónustustarf. Allt sem við getum gert til að flýta fyrir málsmeðferð, lækka kostnað og auka á gagnsæi fyrir borgarana er því eitthvað sem við eigum stöðugt að vinna að. Því það að standa í málaferlum er oftast eitthvað sem leggst þungt á fólk,“ segir Margrét Anna Einarsdóttir eigandi og stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Justikal.

Forstjórinn sem ákveður fríin jafnvel deginum áður og kvöldmatinn hálftíma of seint
Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola á Íslandi, segir líkamann vakna við vekjaraklukkuna klukkan sjö, en heilabúið þegar fyrsti kaffibollinn er drukkinn. Anna segist svo heppin að eiga systur sem hún getur reglulega fengið tryllingsleg hlátursköst yfir.

Fyrir stjórnendur sem eru með nefið ofan í öllu
Það telst úreld stjórnunaraðferð í dag að ofstjórna. Að vera með puttana ofan í öllu sem starfsfólk gerir, fara yfir allt sem gert er, telja sig geta gert hlutina betur eða best, að engum sé treystandi nema þú sért inn í öllu og með tak á öllu.