Innlent
118 119 120 121 122 123 124 125 126 … 334 ›
Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu í Rangárþingi ytra í dag. Lögregla, sem naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, hefur lokið aðgerðum á vettvangi og rannsókn er á frumstigi. Innlent 6.7.2024 20:22
Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Hjón sem áður bjuggu í Reykjavík sjá ekki eftir þeirri ákvörðun að gerast ferðaþjónustubændur í sveitinni. Um þessar mundir eru þau að byggja fleiri smáhýsi fyrir gesti sína. Hjónin Þórlaug og Grétar á Móum í Hvalfjarðarsveit voru í óða önn ásamt vinnufólki þegar fréttastofu bar að garði á dögunum. Innlent 6.7.2024 20:00
Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Bóndi í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu lýsir miklum raunum í áratugalangri baráttu við kerfið, en á, sem rennur um land hans er upp urin. Hrygningarfiskar í ánni eru dauðir og útlitið svart. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 6.7.2024 18:01
Fannst fyrir botni Birnudals Björgunaraðilar fundu göngumanninn sem leitað var í gær fyrir botni Birnudals og var hann látinn þegar þeir komu að honum. Innlent 6.7.2024 16:57
Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í útkall á þriðja tímanum í dag til að aðstoða lögregluna á Suðurlandi á Hala í Háfshverfi í Rangárþingi ytra. Karl Rúnar Ólafssonsegir ábúendur á Hala hafa skotið að gröfumanni sem var við vinnu. Uppákoman tengist deilum um jarðareign sem má rekja allt aftur til ársins 1929. Innlent 6.7.2024 16:34
Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Sex voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bifreiða í Breiðholti í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um nokkuð harðan árekstur og voru tveir dráttarbílar og fjórir sjúkrabílar sendir á vettvang slyssins. Innlent 6.7.2024 14:19
Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa 69 umsagnir bárust Skipulagsstofnun vegna fyrirhugaða framkvæmda Coda Terminal, dótturfyrirtækis Carbfix, en frestur til að skila inn umsögnum rann út í gær. Langflestar umsagnirnar gagnrýna og mótmæla verkefninu. Innlent 6.7.2024 14:04
Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Það iðar allt af lífi og fjöri í Vestmannaeyjum um helgina því þar stendur Goslokahátíð yfir þar sem Eyjamenn og gestir þeirra halda upp á lok gossins í Vestmannaeyjum í byrjun júlí 1973. Innlent 6.7.2024 13:05
Göngumaðurinn fannst látinn Göngumaðurinn sem leitað var að í gærmorgun í fjalllendi í Suðursveit í Sveitarfélaginu Hornafirði fannst látinn. Innlent 6.7.2024 12:00
„Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ Mál gáms sem fluttur var út fyrir bæjarmörk án vitundar eiganda hans og tíu til fjórtán milljóna króna innihaldi þess stolið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglu en rannsóknin hefur ekki leitt neitt í ljós enn sem komið er. Innlent 6.7.2024 11:20
30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á Vesturlandi í nótt en um þessar mundir fara fram Írskir dagar á Akranesi. Um 30 tilvik voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt. Innlent 6.7.2024 11:19
Nýjar stofnanir hafi aðsetur á landsbyggðinni Aðsetur nýrra stofnana umhverfis- orku og loftslagsráðuneytisins verður utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar ráðherra. Embætti forstjóra nýrra stofnana verða auglýst um helgina og mun forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnun hafa aðsetur á Akureyri. Innlent 6.7.2024 10:11
Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ökumaður bifreiðar var handtekinn í nótt grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en hann reyndist sviptur ökuréttindum. Hann var færður til sýnatöku á lögreglustöðinni á Hverfisgötu og var laus úr haldi að því loknu. Innlent 6.7.2024 07:19
Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Elías Guðmundsson, segir það afar ánægjulegt að geta fjölgað meðferðarrýmum hjá sér í 29 á meðferðarheimilinu Krýsuvík. Með því verði hægt að styrkja kvennastarf samtakanna og kynjaskipta meðferðinni. Innlent 6.7.2024 07:00
Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga. Innlent 6.7.2024 06:31
Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Tilfellum þar sem heilbrigðisstarfsfólki er hótað og það jafnvel beitt ofbeldi fjölgar að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna og forstjóra lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Starfsfólk heilsugæslu þar sem ráðist var á lækni á vinnutíma upplifir óöryggi í vinnunni. Innlent 5.7.2024 22:01
Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Eitt glæsilegasta gullregn landsins, ef ekki það glæsilegasta er í garði í Hveragerði en það hefur aldrei blómstrað jafn mikið og í sumar. Þá er líka glæsilegur hlynur í garðinum. Innlent 5.7.2024 20:04
Mikil og þétt umferð í dag Nú í sumar rekur hver stóra ferðahelgin aðra alveg fram yfir Verslunarmannahelgi, jafnvel lengur, og þá tekur umferðin að þyngjast. Innlent 5.7.2024 19:27
Eldsneyti komið aftur í Staðarskála Fyllt hefur verið á eldsneytisdælurnar í Staðarskála í Hrútafirði að nýju en eldsneytislaust varð á fjórða tímanum í dag. Innlent 5.7.2024 18:38
Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi Ofbeldi gegn heilbrigðisstarfsfólki hefur aukist og hótunum fjölgað. Starfsfólk heilsugæslu, þar sem ráðist var á lækni í vikunni, upplifir aukið óöryggi í vinnunni. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við framkvæmdastjóra lækninga hjá heilsugæslunni og formann Félags heimilislækna. Innlent 5.7.2024 18:20
Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi Ekki er að sjá að dregið hafi úr kvikuinnstreymi í Svartsengi frá því að eldgosi lauk í síðasta mánuði. Þá hefur skjálftavirkni á Svartsengi verið mjög lítil og fáir smáskjálftar mælst á hverjum degi. Innlent 5.7.2024 17:23
Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Göngumaðurinn sem björgunarsveitir og Landhelgisgæslan hafa leitað síðan klukkan sjö í morgun fannst á fjórða tímanum í dag í Suðursveitum. Innlent 5.7.2024 16:52
Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Karlmaður hefur hlotið átján mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, en þar af verða fimmtán mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára, vegna fjölda brota gegn konu og börnum. Innlent 5.7.2024 16:00
Ekkert eldsneyti í Staðarskála Bensínstöð N1 í Staðarskála í Hrútafirði er án eldsneytis, vegna mannlegra mistaka hjá Olíudreifingu. Framkvæmdastjóri hjá N1 segir um klukkustund í að hægt verði að taka eldsneyti á stöðinni að nýju. Innlent 5.7.2024 15:52
Ekki spurst til mannsins síðan snemma í gær Leit stendur enn yfir að manni við Skálafellsjökul á Suð-Austurlandi en mannsins hefur verið leitað síðan klukkan sjö í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út ásamt björgunarfólki Hornafjarðar en talið er að maðurinn sé búinn að vera einn á gangi á svæðinu síðan í gærmorgun. Innlent 5.7.2024 14:39
Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Árið 2020 voru 52 karlmenn með erlent ríkisfang grunaðir um kynferðisbrot hér á landi. Tveimur árum síðar voru þeir eitt hundrað. Innlent 5.7.2024 14:01
Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fagnaði kosningasigri Verkamannaflokksins í Bretlandi með formanni flokksins, Keir Starmer. Kristrún segir Starmer meðvitaðan um uppgang Samfylkingarinnar á Íslandi. Innlent 5.7.2024 13:38
Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lætur Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins ekki eiga neitt inni hjá sér en í kröftugri svargrein um Mannréttindastofu segir hún Sigmund og þá Miðflokksmenn innilega ósamkvæma sjálfum sér. Innlent 5.7.2024 13:25
Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Hæstiréttur mun taka fyrir mál Inga Vals Davíðssonar, Ólafsfirðings á fertugsaldri, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Landsrétti í apríl síðastliðnum fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar síns. Innlent 5.7.2024 13:19
Skjálfti suðvestur af Reykjanestá Jarðskjálfti varð níutíu kílómetrum suðvestur af Reykjanestá um hádegisleytið í dag. Stærð skjálftans var 3,4 að stærð, en hann mældist klukkan 12:20. Innlent 5.7.2024 12:53