Golf

Mörg góð skor á Greenbrier - Tiger enn í toppbaráttunni
Efstu menn á Greenbrier Classic á níu höggum undir pari á Old White TPC vellinum í Virginíufylki. Tiger Woods er ofarlega á skortöflunni eftir tvo góða hringi.

Loksins góður hringur hjá Tiger
Er meðal efstu manna eftir fyrsta hring á Greenbrier Classic eftir að hafa leikið Old White TPC völlinn á 66 höggum eða fjórum undir pari.

Bubba hlustar ekki á ráð frá áhorfendum
Skildi áhorfanda á Travelers meistaramótinu eftir með sárt ennið á sprenghlægilegan hátt á lokahringnum í gær.

Bubba bar sigur úr býtum á Travelers
Sigraði á sínu öðru móti á árinu eftir bráðabana við Paul Casey. Virðist vera að komast í gírinn fyrir Opna breska meistaramótið sem fram fer í næsta mánuði.

Tryggði sér sigurinn á BMW International Open eftir gallalausan lokahring
Spánverjinn Pablo Larrazabal sýndi stáltaugar á lokahringnum á BMW International Open og sigraði á sínu fjórða móti á Evrópumótaröðinni á ferlinum. Tryggði sér farseðil á Opna breska í leiðinni.

Pressuliðið sigraði landsliðið | Fuglarnir skiluðu miljón
Pressuliðið hafði betur gegn landsliðinu í KPMG-bikarnum, en mótið fór fram á Grafarholtsvelli í dag við frábærar aðstæður. Keppnisfyrirkomulagið er sótt í hefðir Ryderkeppninnar og leikinn var holukeppni.

Bubba enn efstur á Travelers meistaramótinu
Lék á þremur höggum undir pari á öðrum hring og leiðir með tveimur höggum þegar að mótið er hálfnað.

Spilað fyrir gott málefni í Grafarholti
Landsliðin í golfi etja í dag kappi við úrvalslið atvinnu- og áhugamanna á KPMG-mótinu sem haldið verður á Grafarholtsvelli.

Bubba Watson efstur á Travelers eftir fyrsta hring
Hefur ekki verið að leika vel að undanförnu en átti frábæran fyrsta hring á TPC River Highlands vellinum.

Úlfar: Strákarnir ætla að endurheimta sæti sitt í fyrstu deild
Landsliðsþjálfarinn í golfi segir samkeppnina alltaf að aukast þannig Íslendingar þurfa að halda vel á spilunum.

Kristján Þór aftur í landsliðið
Landsliðin í golfi valin fyrir Evrópumót landsliða í karla- og kvennaflokki.

Bestu kylfingar heims ekki sáttir við bandaríska golfsambandið eftir US Open
Ian Poulter rífur bandaríska golfsambandið í sig á Instagram fyrir hvernig flatirnar voru á Chambers Bay vellinum um helgina. Margir af bestu kylfingum heims taka undir með honum.

Jordan Spieth sigraði á US Open eftir ótrúlega dramatík
Dustin Johnson þrípúttaði af fjögurra metra færi á einhvern ótrúlegan hátt á lokaholunni á Chambers Bay sem færði Jordan Spieth sigurinn á silfurfati. Er yngsti sigurvegari á US Open í næstum því heila öld.

Heiða fagnaði sínum fyrsta stóra titli: Púttaði eins og barn
Heiða Guðnadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar fór út í bíl og hlustaði íþróttasálfræðifyrirlestur áður en fór út og vann úrslitaleikinn á Íslandsmótinu í holukeppni í dag.

Axel vann góðan félaga í úrslitum: Saman í bústað frá því á miðvikudaginn
Axel Bóasson varð Íslandsmeistari í holukeppni í dag eftir uppgjör tveggja Keilismanna og góðra félaga í úrslitaleiknum.

Heiða Íslandmeistari í holukeppni
Heiða Guðnadóttir, úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, varð Íslandsmeistari í holukeppnikvenna eftir sigur á Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir, úr Golfklúbbi Reykjavík. Mótið fór fram á Akureyri um helgina.

Axel Íslandsmeistari í holukeppni
Axel Bóasson, úr Golfklúbbnum Keili, er Íslandsmeistari í holukeppni eftir sigur á félaga sínum úr Golfklúbbi Keili, Benedikt Sveinssyni. Mótið fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri.

Heiða og Ólafía Þórunn mætast í úrslitunum hjá konunum
Heiða Guðnadóttir úr GM og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR mætast í úrslitum kvenna á Íslandsmótinu í holukeppni sem fer fram um helgina á Jaðarsvelli á Akureyri.

Allt í járnum fyrir lokahringinn á Chambers Bay
Fjórir kylfingar deila efsta sætinu á fjórum höggum undir pari fyrir lokahringinn á US Open sem verður án efa æsispennandi.

Keilismenn mætast í úrslitum karla í ár
Íslandsmeistarinn í holukeppni 2015 kemur úr Keili en þetta varð ljóst þegar Benedikt Sveinsson tryggði sér sæti í úrslitum á Íslandsmótinu í holukeppni á Jaðarsvelli á Akureyri.

Axel fyrstur í úrslitin á Íslandsmótinu í holukeppni
Axel Bóasson úr Keili var fyrsti til að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum á Íslandsmótinu í holukeppni á Jaðarsvelli á Akureyri þegar hann vann undanúrslitaviðureign sína við Stefán Már Stefánsson úr GR 4/3.

Nýtt nafn á bikarinn í karlaflokki
Það er orðið ljóst hverjir mætast í undanúrslitum í karlaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni, en leikið er á Jarðarsvelli á Akureyri. Aðstæður hafa verið góðar um helgina.

Signý getur unnið í þriðja skiptið
Ljóst er hvaða kylfingar mætast í undanúrslitaviðureign kvenna á Íslandsmótinu í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni sem nú stendur yfir á Jaðarsvelli á Akureyri.

Birgir Leifur í 61. - 62. sæti
Birgir Leifur Hafþórsson situr í 61. - 62. sæti á Najeti Open í Frakklandi, en hann er samtals á fimm yfir eftir þrjá hringi á mótinu. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og Áskorendamótaröð Evrópu.

Bandarísku ungstirnin í forystu á US Open - Tiger Woods náði nýjum lægðum og er úr leik
Jordan Spieth og Patrick Reed leiða á US Open þegar að mótið er hálfnað. Rory McIlroy rétt komst í gegn um niðurskurðinn en Tiger Woods setti enn eitt persónulega metið.

Annarri umferð á Íslandsmótinu í holukeppni lokið
Annarri umferð á Íslandsmótinu í holukeppni lauk í dag en mótið fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri. Mótið er fjórða mót tímabilsins á Eimskipsmótaröðinni.

Tiger: Ég er á réttri leið
Átti hræðilegan fyrsta hring á Opna bandaríska en ætlar ekki að gefast upp.

Pínleg byrjun Tiger á Opna bandaríska
Rory McIlroy, besti kylfingur heims, byrjaði ekki vel en það er þó ekkert miðað við raunir Tiger Woods sem situr enn á ný meðal neðstu manna eftir enn eina hræðilega frammistöðu.

Andri Þór úr leik á Opna breska áhugamannamótinu
Andri Þór Björnsson, úr GR, er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu eftir 2/1 tap gegn Frakkanum Daydou Alexandre í 16-manna úrslitum á Carnoustie vellinum í Skotlandi.

Tiger: Stundum verður maður að breyta til
US Open hefst í dag en átta ár eru síðan Tiger Woods fagnaði sínum síðasta risatitli á því móti.