Lífið

Gordon Lightfoot er fallinn frá
Kanadíski þjóðlagasöngvarinn Gordon Lightfoot er látinn, 84 ára að aldri.

Kemur frá Belgíu og er heltekin af Íslandi: „Ég get bara ekki sagt neitt neikvætt um Ísland“
Hin belgíska Annelies Barentsen varð ástfangin af Íslandi þegar hún heimsótti landið í fyrsta skipti fyrir tíu árum. Síðan þá hefur notað hvert tækifæri til að ferðast hingað og hún hætti að telja fjölda ferðanna eftir tuttugu skipti. Hún kveðst vera heltekin af landinu, og hefur nú stofnað ferðaskrifstofu í þeim tilgangi að gera samlöndum sínum kleift að uppgötva Ísland.

Líður stundum eins og hann sé ekki alvöru manneskja
Haraldur Þorleifsson, betur þekktur sem Halli í Ueno, lét draum sinn rætast og lék í alþjóðlegri kvikmynd í síðustu viku. Hann segir leiklistina henta sér vel því oft líði honum eins og hann þurfi að leika sig í gegnum hversdaginn.

Farsælir íslenskir tvíburar
Tvíburar hafa verið á margra vörum síðustu vikur eftir að sjónvarpsþættir Ragnhildar Steinunnar um tengsl og samfylgd tvíbura í gegnum lífið fór í loftið. Fjölmargar erlendar stjörnur eru tvíburar, má þar til dæmis nefna Elvis Presley, Scarlet Johansson, Vin Diesel, Gisele Bündchen, Ashton Kutcher og Kiefer Sutherland. Vísir tók saman lista yfir farsæla Íslendinga sem eru tvíburar.

Samdi sjö lög á fjórum tímum eftir krabbameinsgreiningu eiginkonunnar
Breski söngvarinn Ed Sheeran samdi sjö lög á fjórum klukkutímum eftir að eiginkona hans greindist með krabbamein er hún gekk með annað barn þeirra. Heimildaþættir um Sheeran og hans líf koma út á miðvikudaginn.

Diljá kvödd með lúðrasveit og eldgleypum
Diljá Pétursdóttir lagði af stað til Liverpool í nótt þar sem hún mun taka þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í næstu viku. Það var nóg um að vera þegar Diljá og föruneyti hennar lögðu af stað upp á flugvöll en þar var meðal annars lúðrasveit og eldgleypar.

The House of Beauty fagnar fimm ára afmæli - glæsileg afmælistilboð
The House of Beauty, ein vinsælasta heilsu- og líkamsmeðferðarstofa landsins, fagnar í dag fimm ára afmæli sínu í dag með glæsibrag. Stofan, sem hefur sinnt landsmönnum með hágæða þjónustu í hálfan áratug, fagnar þessum tímamótum með opnu húsi í dag frá kl. 13-16 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og glæsileg tilboð fyrir gesti og gangandi.

Annar þáttur af Kökukasti: „Lúkkið er alltaf númer eitt, tvö og þrjú“
Annar þáttur af Kökukasti er kominn í loftið. Um er að ræða stórskemmtilega fjölskylduþætti í umsjón bræðranna Gústa B og Árna Beinteins. Þættirnir eru sýndir hér á Vísi og á Stöð 2+ á mánudögum.

Björn Bragi kaupir 160 milljóna króna einbýlishús
Athafnamaðurinn og skemmtikrafturinn Björn Bragi Arnarsson hefur fest kaup á einbýlishúsi við Nesbala á Seltjarnarnesi.

MasterChef-dómarinn Jock Zonfrillo er látinn
Skoski sjónvarpsmaðurinn Jock Zonfrillo er látinn, 46 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem dómari í áströlsku útgáfu MasterChef-þáttanna.

„Mig langaði bara að leyfa geirvörtunni að njóta sín“
„Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt.

Systkini boða til hlaups til styrktar Einstökum börnum
Systkinin Nína Kristín, Áslaug Arna og Magnús Sigurbjörnsbörn hafa boðið öllum sem vilja að hlaupa, ganga eða rúlla með þeim fimm kílómetra í miðbæ Reykjavíkur á morgun, 1. maí. Hlaupið verður til styrktar Einstökum börnum og til heiðurs móður þeirra, sem átti afmæli 1. maí og lést fyrir ellefu árum.

Fólk stofnar fyrirtæki með aðstoð Íslendinga
Alls staðar á hnettinum erum við mannfólkið að kljást við það sama, að búa okkur til lífvænleg skilyrði. Að koma þaki yfir höfuðið, hafa öruggt aðgengi að mat, og hafa tækifæri til að afla sér tekna.

Allt varð vitlaust þegar Eyþór og Sigga tóku Stjórnarsyrpu og sá síðhærði sá ekki textann
Kvöldstund með Eyþóri Inga var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í þáttunum flytur Eyþór skemmtilega smelli ásamt stórsveit og fær einnig til sín gest sem aðstoðar hann á sviðinu.

Svona var tískusýning útskriftarnema LHÍ
Í kvöld fór fram útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands (LHÍ). Þar sýndu þeir níu nemendur sem útskrifast í vor þann klæðnað sem þeir hafa hannað á skólaárinu.

Alltumlykjandi kynorkan veitti innblásturinn
Dularfullur tónlistarmaður sem kallar sig BLOSSI var að senda frá sér lagið Heim með þér. Þetta er fyrsta lag sem kemur út í nafni BLOSSA, sem segist vera heitasti nýi listamaðurinn í dag.

„Þetta var uppáhaldshúsið hennar mömmu“
Haraldur Þorleifsson, betur þekktur sem Halli í Ueno, segir að viðbrögð landsmanna við veitingastaðnum Önnu Jónu á Tryggvagötu 11 hafi farið fram úr sínum björtustu vonum. Hann segist hafa viljað fylla uppáhaldshús móður sinnar af lífi.

Lærði ensku til að geta skilið Backstreet Boys
Sýrlensk-kanadíski rithöfundurinn Danny Ramadan er staddur hér á landi og fór á Backstreet Boys-tónleikana í gærkvöldi með forsetafrúnni Elizu Reid. Að sögn Elizu lærði Ramadan ensku til þess að geta skilið texta Backstreet Boys.

„Þú passar ekki endilega í gallabuxurnar þínar en þú passar alltaf í skóna þína“
Lífskúnstnerinn og menntaskólaneminn Sverrir Ingibergsson hefur gríðarlegan áhuga á tísku og elskar hvað hún getur verið breytileg. Hann hefur farið í gegnum ýmis tískutímabil, er óhræddur við að skera sig úr og er alls ekki hrifinn af kvartbuxum. Sverrir er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Myndaveisla: Backstreet Boys trylltu lýðinn í Laugardalnum
Strákabandið Backstreet Boys hélt tónleika í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Fjöldi fólks var þar saman kominn og virtust allir vera að njóta í botn.

Beef: Hökkuð í spað
Ég fékk skilaboð frá vini mínum sem mælti með þáttunum Beef á Netflix, hann sagðist ekki hafa getað hætt og vakað til klukkan 3 um nótt að klára. Maður fær slík meðmæli ekki oft, því hóf ég áhorf.

Meira eða minna pönk – það er spurningin
Seinni umferð Skúrsins hófst í gær föstudag en í þáttunum keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu auk þess sem keppt er um besta frumsamda lagið.

Var fimmtán ára þegar hún skrifaði undir fyrsta erlenda plötusamninginn
„Tónlistin hefur alltaf verið í umhverfinu hjá mér. Ég upplifði aldrei augnablikið þar sem ég ákvað að nú ætlaði ég að byrja, það var engin fyrsta skóflustunga,“ segir tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, sem hefur gert öfluga hluti í heimi tónlistarinnar og verið með annan fótinn í erlendu senunni frá unglingsaldri. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá tónlistinni og tilverunni.

Bar bónorðið upp á sjúkrahúsbedda
Listakonurnar og kærustuparið Íris Tanja Flyernring og Elín Eyþórsdóttir eru nýjustu viðmælendur Ása í hlaðvarpsþættinum hans, Betri helmingurinn. Þar ræða þær um skemmtilegar staðreyndir úr sinni sambandstíð.

Fréttakviss vikunnar: Rihanna, Tucker Carlson og Fellabakarí
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi vikunnar sem er í boði á Vísi á laugardögum.

Mikki refur og Karíus og Baktus á Sólheimum í Grímsnesi
Það eru margar litríkar persónur á Sólheimum í Grímsnesi þessa dagana eins og Mikki refur og Rauðhetta, Karíus og Baktus og ræningjarnir Kasper, Jesper og Jónatan. Hér erum við að tala um uppfærslu Leikfélags Sólheima á leikritinu „Skógarbrúðkaup“.

Kryddaðu upp á trúboðann
Kynlífsstellingin trúboðinn er ein af þessum hefðbundnu og vinsælu stellingum í svefnherberginu. Pör eiga það til festast í vananum almennt, og á það ekki síður við í rúminu. Kynlífstækjaverslunin Blush setti saman lista af níu hugmyndum sem gætu kryddað upp á stellinguna og gert upplifunina enn betri.

Katy Perry tapaði gegn Katie Perry
Söngkonan Katy Perry tapaði í dag máli sem ástralski tískuhönnuðurinn Katie Taylor höfðaði gegn henni. Taylor selur föt sín undir merkinu „Katie Perry“ sem er fæðingarnafn hennar. Þarf söngkonan að greiða nöfnu sinni skaðabætur fyrir varning sem hún seldi í tengslum við tónleikaferðalag sitt árið 2014.

Backstreet boys njóta sín á flakki um Ísland
Hluti af strákabandinu Backstreet Boys hefur ferðast um Ísland síðustu daga og leyft fylgjendum á samfélagsmiðlum að sjá frá herlegheitunum áður en þeir stíga á svið í kvöld. Hjómveitin heldur sína fyrstu tónleika hér á landi, sem er hluti af tónleikaferðalaginu DNA tour, í Nýju Laugardalshöllinni klukkan 21.

Virðist vera á leiðinni á Met Gala eftir allt saman
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian virðist vera á leiðinni á Met Gala á mánudaginn, þrátt fyrir háværar sögusagnir um að henni yrði ekki boðið á viðburðinn í ár.