Neytendur
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 23 ›
Slær á putta Nettós vegna verðmerkinga Neytendastofa hefur slegið á putta Samkaupa vegna verðmerkinga í vefverslun Nettós þar sem einingarverð vantaði á fjölda vara á vefsíðunni. Þeim fyrirmælum hefur verið beint til félagsins að koma einingaverðum í rétt horf, ellegar sæta dagsektum. Neytendur 4.7.2023 13:18
Sektaði Birtu CBD fyrir að brjóta lög með fullyrðingum sínum Neytendastofa sektaði Birtu CBD um 100 þúsund krónur vegna fullyrðinga um lyfjavirkni snyrtivara sem stofnunin telur hafa brotið lög. Fyrirtækið flytur inn og selur vörur sem innihalda CBD, einnig þekkt sem kannabídíól unnið úr kannabisplöntum. Neytendur 3.7.2023 12:21
Óttast að svikaupphæðin nemi 200 milljónum króna Árni Björn Björnsson, veitingamaður á Sauðárkróki, segist óttast að Íslendingur sem gefið hafi sig út fyrir að flytja inn og selja hús frá Austur-Evrópu, hafi svikið hátt í 200 milljónir króna frá stórum hópi fólks. Hann segir fjölda þeirra sem hafi samband við sig vegna málsins aukast á hverjum degi. Hann mun gefa lögreglu skýrslu í dag vegna málsins. Neytendur 3.7.2023 12:01
„Við höfum ekkert að fela“ Forstjóri Húsasmiðjunnar hafnar því að vörur hafi verið hækkaðar í verði til þess eins að telja neytendum trú um að afsláttur á sumarútsölu væri meiri. Valdar vörur í sumarbæklingi hafi farið á almennt listaverð í nokkra daga áður en allsherjarútsala hófst. Fyrirtækið hafi ekkert að fela. Neytendur 30.6.2023 13:01
Borist ábendingar um tugmilljóna króna svik vegna innflutnings á húsum Neytendasamtökunum hefur borist ábending um að tugir milljóna hafi verið sviknar út úr sextán manns af íslenskum aðila sem gefur sig út fyrir að flytja inn og selja hús frá Austur-Evrópu. Formaður Neytendasamtakanna segir samtökin hafi fengið ábendingu um málið en geti lítið gert í slíkum málum annað en að vísa þeim til lögreglu. Neytendur 30.6.2023 10:30
Vörur á mesta afslættinum voru hækkaðar í verði í vikunni Verkefnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ kom sér upp sjálfvirkum gagnagrunni verðlags hjá hinum ýmsu fyrirtækjum á dögunum. Á innan við viku nappaði hann stórfyrirtæki sem hækkaði verð fjölda vara til þess eins að blása til útsölu þremur dögum seinna. Neytendur 29.6.2023 22:08
Vildu ekki Prettyboitjokko en fengu hann samt Mikil gremja og reiði er meðal útskriftarnema Menntaskólans við Sund eftir að útskriftarferð á vegum Tripical til Krítar á Grikklandi fór ekki eins og til stóð. Ítrekaðar breytingar á brottfaratímum, vandræði með farangur, lélegt upplýsingaflæði og óánægja með bókun tónlistarmannsins Prettyboitjokko er meðal þess sem nemendurnir hafa agnúast út í. Hafa margir farið fram á að fá hluta ferðakostnaðarins endurgreiddan. Neytendur 29.6.2023 17:04
Þurfa að endurgreiða skíðaferðir: „Þessi dómur er okkur með öllu óskiljanlegur“ Forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands segir fyrirtækið harma dóma Hæstaréttar þess efnis að því beri að endurgreiða pakkaferðir sem afpantaðar voru skömmu fyrir brottför. Neytendur 28.6.2023 18:39
Allt að helmings verðmunur áfengis í vefbúðum Sante Wines og Costco bjóða oftast upp á lægsta verðið á áfengi samkvæmt óformlegri könnun Vísis. Fjölgar þeim stöðugt vefverslununum sem bjóða upp á áfenga drykki. Neytendur 28.6.2023 07:46
Marabou og Daim mun hverfa úr hillum IKEA Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA hyggst taka vörur frá súkkulaðirisanum Mondelez úr sölu. Fyrirtækið er enn með umsvifamikla starfsemi í Rússlandi og greiðir skatta til rússneska ríkisins. Neytendur 27.6.2023 16:31
Ís í brauðformi búinn að rjúfa þúsund króna múrinn Stór ís í brauðformi með súkkulaðidýfu og lakkrískurli hefur rofið þúsund króna múrinn víða í ísbúðum á höfuðborgarsvæðinu á meðan stór bragðarefur kostar sum staðar meira en tvö þúsund krónur. Vísir gerði óformlega verðkönnun meðal nokkurra ísbúða en þar er skammt stórra högga á milli, ísinn hefur hækkað í verði eins og flestar vörur landsins. Neytendur 17.6.2023 20:00
Aldrei jafn margir með sparnaðarreikning eins og á síðustu og verstu Óverðtryggður sparnaðarreikningur Íslandsbanka er orðinn sá stærsti á einstaklingssviði bankans. Framkvæmdastjóri einstaklingssviðsins segir verðbólgutíð þar spila stærstan þátt. Aldrei hafi eins margir spáð í sparnað og nú. Neytendur 16.6.2023 07:01
Hagkaup bætist í hóp verslana sem selja áfengi Hagkaup stefnir að því að hefja netverslun áfengis á næstu misserum. Verslunin mun þá bætast í hóp með Costco, Heimkaupum og fjölda smærri netverslana. Dómsmálaráðherra segist ekki getað dregið aðra ályktun en að vefverslun með áfengi sé lögmæt. Neytendur 14.6.2023 15:51
Sláandi munur á risarækjum sem kostuðu jafnmikið Eyþór Jóvinsson, bóksali, birti færslu á Facebook í dag þar sem hann vakti athygli á sláandi mun á tveimur risarækjuréttum sem hann borðaði. Réttirnir kostuðu báðir 3500 krónur en munurinn á framsetningu og bragði var gífurlegur. Neytendur 14.6.2023 12:40
Costco opnar á sölu áfengis til einstaklinga Verslunarrisinn Costco er kominn í samkeppni við Vínbúðina og netverslanir í sölu á áfengi á netinu. Einstaklingar geta nú pantað áfengi á vefsíðu Costco og sótt í verslunina í Kauptúni. Neytendur 13.6.2023 14:03
Samningi rift vegna kaupa á pug-hundi sem reyndist fatlaður Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur viðurkennt rétt manns til að rifta samningi um kaup á hreinræktuðum hundi af tegundinni pug þar sem í ljós hafi komið að hundurinn hafi reynst fatlaður. Neytendur 12.6.2023 08:33
Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála. Neytendur 9.6.2023 20:01
Innkalla spínatpasta vegna aðskotahluta Heildsalan Danól ehf. hefur innkallað spínatpasta frá vörumerkinu Pastella í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Ástæðan er sú að málmagnir fundust í vörunni, samkvæmt tilkynningu frá eftirlitinu. Neytendur 9.6.2023 15:40
Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni. Neytendur 9.6.2023 13:30
Farþegar reiðir leiguflugvélum Icelandair Upp á síðkastið hafa nokkrar flugferðir Icelandair verið með óhefðbundnu sniði en félagið leigir nú flota frá búlgarska flugfélaginu Fly2Sky auk þess sem Dash8 Q400 vél úr innanlandsflugi var bætt við flotann. Flugvélarnar sem um ræðir eru að sögn ósáttra farþega minni, háværari og ekki er boðið upp á skemmtikerfi á sætisbökum, sem er eitt aðaleinkenni Icelandair flugvéla. Neytendur 9.6.2023 12:16
Tók eftir lækkunum samkeppnisaðila í aðdraganda Verðgáttar Framkvæmdastjóri Bónus segist hafa tekið eftir verðbreytingum hjá samkeppnisaðilum í aðdraganda birtingu Verðgáttar. Rekstrarstjóri Nettó vísar ásökununum á bug. Neytendur 8.6.2023 21:01
Vísbendingar um verðsamráð verslana eftir útgáfu Verðgáttar Vísbendingar eru um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt örfáum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi. Í sumum tilfellum var verð hækkað þar sem varan reyndist dýrari annars staðar. Neytendur 8.6.2023 19:12
Neytendur geta borið saman matvöruverð þriggja verslunarrisa Vefurinn Verðgáttin er nú komin í loftið en hún gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar. Neytendur 7.6.2023 15:38
Segir stjórnvöld fórna heimilum ítrekað fyrir bankana Hagvöxtur mældist sjö prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Aukin einkaneysla, þrátt fyrir verðhækkanir, bendir til þess að heimili séu farin að ganga á sparnað sinn til að ná endum saman. Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir stöðuna gríðarlega alvarlega. Neytendur 31.5.2023 11:36
Íslenskir neytendur geti ekki leitað til íslenskra dómstóla Formaður Neytendasamtakanna segir sýknun Íslandsbanka í máli sem karlmaður höfðaði með aðkomu samtakanna gegn Íslandsbanka vera gífurleg vonbrigði. Dómnum verði áfrýjað til Landsréttar en hann bindur annars vonir við að Evrópskir dómstólar taki upp hanskann fyrir neytendur. Neytendur 25.5.2023 21:55
Taka stikkprufur á meðan ný lausn sannar gildi sitt í Bónus Viðskiptavinir Bónus á Smáratorgi geta nú gripið sér skanna við inngang verslana og skannað vörur beint ofan í poka á leið sinni um verslunina. Nýja sjálfsafgreiðslulausnin heitir Gripið og greitt eins og samnefnd verslun sem lagði upp laupana snemma á öldinni. Helsti samkeppnisaðilinn Krónan hefur í hálft annað ár boðið upp á svipaða lausn þar sem viðskiptavinir geta skannað vörur með notkun apps. Neytendur 25.5.2023 13:52
Bíl-og bóllaus lífstíll í einni íbúð á Snorrabraut Íbúð sem nú er í byggingu á Snorrabraut 62 hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar er ekki að finna svefnherbergi og grínast netverjar með að því verði hægt að lifa bíl-og bóllausum lífsstíl í íbúðinni en engin bílastæði fylgja húsinu. Framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Snorrahúss segir deiluskipulag hafa nauðbeygt byggingaraðila í að hafa íbúðina án svefnherbergis. Neytendur 24.5.2023 07:00
Sátu eftir á Alicante eftir að fluginu var flýtt Íslenskt par varð eftir á Alicante á Spáni í dag eftir að flugi þeirra með flugfélaginu Play var flýtt um fimm klukkustundir vegna óveðurs. Þau sakna þess að hafa fengið tilkynningu frá flugfélaginu. Flugfélagið segir slíkt því miður geta komið fyrir þegar flugmiðar séu bókaðir í gegnum þriðja aðila. Komið verði til móts við fólkið og því boðin frí breyting á flugi. Neytendur 23.5.2023 21:05
Glútenfrír bjór innkallaður vegna glútens Matvælastofnun hefur varað við glútenfría bjórnum Snublejuice frá To Øl sem Rætur og Vín ehf. flytja inn þar sem glúten í bjórnum. Bjórinn er markaðssettur sem glútenfrír bjór. Neytendur 23.5.2023 07:29
Sekta verslanir í Kringlu og Smáralind Þrettán verslanir í Kringlunni og Smáralind hafa verið sektaðar fyrir skort á verðmerkingum. Neytendur 22.5.2023 21:19