Tónlist

The Rapture spilar á Nasa í kvöld
Bandaríska danspönksveitin The Rapture heldur tónleika á Nasa í kvöld. Sveitin spilaði á Iceland Airwaves-hátíðinni fyrir fimm árum við mjög góðar undirtektir og ætlar nú að endurtaka leikinn.

Synir Johns Lennon sættast
Julian og Sean Lennon, synir fyrrum Bítilsins Johns Lennon, hafa grafið stríðsöxina sem staðið hefur á milli þeirra bræðra síðustu átta ár. Hálfbræðurnir eru nú byrjaðir að talast við að nýju en stirrt hafði verið á milli þeirra allt frá því að Julian lét hafa eftir sér niðrandi ummæli um Yoko Ono, síðari eiginkonu Johns og móður Seans. Móðir Julians er fyrri eiginkona Johns, Cynthia. Það var hinn 44 ára gamli Julian sem átti frumkvæðið að sáttunum.

Páll Óskar verður kóngurinn á brúðkaupsdaginn mikla.
„Ég er þríbókaður, eitt brúðkaup í Skorradal og tvö í bænum. En það eru ennþá að berast fyrirspurnir frá fólki um hvort ég sé laus þennan daginn,“ segir Hjörleifur Valsson, fiðluleikari en hann verður á þönum þegar hinn ógnvænlegi dagur, 07.07.07, rennur upp.

Góðir gestir snúa aftur
Tékkneski strengjakvartettinn PiKap heldur sex tónleika hér á landi á næstum dögum ásamt Eydísi Franzdóttur óbóleikara. PiKap strengjakvartettinn hefur haldið fjölda tónleika víða um Evrópu og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir einstaklega vandaðan og tilfinningaríkan flutning.

Live Earth í beinni
Tónlistarviðburðurinn Live Earth verður í beinni útsendingu á Skjá einum laugardaginn 7. júlí. Sýndir verða tónleikar frá níu mismunandi stöðum í sjö heimsálfum, þar á meðal frá New York, Sydney, Jóhannesarborg og Tókýó. Auk þess verður sent beint frá Suðurskautslandinu. Hefst fjörið klukkan sjö að morgni og stendur yfir í heilan sólarhring.

Rokkað í kjallaranum hjá Jóa Fel
„Ég heyri í þeim, en sem betur fer æfa þeir bara á kvöldin á meðan við erum ekki við vinnu. Á meðan svo er þá er þetta í góðu lagi,“ segir bakarinn og sjónvarpsmaðurinn Jói Fel en í kjallaranum á húsnæði hans stærsta bakarís við Kleppsveginn hafa vinsælar rokksveitir komið sér upp æfingaaðstöðu.

Yfirlýsing á næstunni
Breska stúlknasveitin Spice Girls ætlar að tilkynna um framtíðaráform sín á næstu dögum. Miklar vangaveltur hafa verið uppi um að stúlkurnar ætli að koma saman á nýjan leik eftir margra ára hvíld.

„Lítum á okkur sem danshljómsveit“
Hljómsveitin The Rapture spilar á tónleikum hérlendis næstkomandi þriðjudagskvöld. Hljómsveitin þykir með heitustu partíhljómsveitum veraldar um þessar mundir en í fyrra kom út platan Pieces of the People We Love og hlaut hún frábærar viðtökur.

Bítlarnir vinsælir austan hafs og vestan
Plötur með lögum eftir Bítlana fyrrverandi, Paul McCartney, George Harrison og John Lennon, eru allar á lista yfir fimmtán vinsælustu plötur Bandaríkjanna.

Týndust í Liverpool
Rokksveitin Gavin Portland er á tónleikaferð um Bretland sem stendur yfir til 2. júlí. Fyrst hitar sveitin upp fyrir Hell is for Heroes en eftir það heldur hún nokkra tónleika ein og sér.

Tíu ára afmæli Furstanna
Tíu ára starfsafmæli Furstanna verður haldið á Kringlukránni um helgina. Á efnisskrá Furstanna verður swing og latínmúsik, efni sem hún hefur verið að leika undanfarin ár.

Nýtt myndband Páls Óskars í anda Sin City
Nýtt myndband með Páli Óskari Hjálmtýssyni við lagið Allt fyrir ástina verður frumsýnt á föstudaginn og fullyrðir söngvarinn sjálfur að um „flottasta tónlistarmyndband sem gert hefur verið á Íslandi" sé að ræða. Gríðarlega mikill tími og fjármunir hafa verið lagðir í myndbandið en í því er stuðst við svokallaða „green-screen" tækni þar sem allur bakgrunnur er þrívíddarteiknaður.

Ringo á netinu
Fyrrum trommari Bítlanna, Ringo Starr, ætlar að gefa út á netinu lögin sem hann sendi frá sér á vegum plötufyrirtækisins Capitol/EMI á árunum 1970 til 1975.

Veggurinn vinsæll
Vegna mikillar aðsóknar á tónleika hljómsveitarinnar Dúndurfrétta og Sinfóníuhljómsveitar Íslands 29. júní næstkomandi verða haldnir aukatónleikar deginum áður, fimmtudaginn 28. júní.

Alveg í sjöunda himni
Tónlistarmaðurinn Birkir Rafn Gíslason, eða Single Drop eins og hann kallar sig, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu. Þar er á ferðinni tilraunakennt og melankólskt popp með rokkuðum áhrifum. Birkir Rafn byrjaði að vinna plötuna fyrir um einu og hálfu ári.

Grenivík eignar sér Ægissíðu
„Ég var alveg viss um að þetta væri með tveimur essum. Þetta eru bara mín mistök,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson um lagið Ægissíða, sem er misritað á nýjustu plötu hans Hagamelur.

Endurkoma Spice Girls samþykkt af Mel C.
Söngkonan Mel C hefur loksins samþykkt að koma fram með sínum fyrri félögum í hljómsveitinni Spice Girls og er nú ekkert því til fyrirstöðu að Kryddpíurnar snúi aftur á sjónarsviðið. Hinar Kryddpíurnar, Geri Halliwell, Mel B, Emma Bunton og Victoria Beckham, höfðu allar samþykkt endurkomuna en það var hjá Mel C sem hnífurinn stóð í kúnni - allt þar til í gær.

Stones spila gömul lög
Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, segir að The Rolling Stones leggi of mikla áherslu á gömul lög á tónleikum sínum. Þrátt fyrir að Queens of the Stone Age hafi hitað upp fyrir Stones á tónleikum telur Homme að rokkhundarnir þurfi að taka sig saman í andlitinu.

Elton John spilar og vekur athygli á alnæmi
Elton John lék fyrir 200 þúsund manns undir berum himni á aðaltorginu í Kænugarði í Úkraínu til vekja athygli á alnæmisvanda landsins.

Tónleikaferð Pete Best styrkt af Icelandair
„Þetta kom nú þannig til að hann var áberandi í Bandaríkjunum og sölusvæði okkar þar efndi til smá samstarfs við hann,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair en á vefsvæði tónleikaferðar Pete Best kemur fram að flugfélagið styrkir ferðir hans til Bandaríkjanna.

Frosti og Þröstur hættir í Mínus
Gítarleikarinn Frosti Logason og bassaleikarinn Þröstur Jónsson eru hættir í rokksveitinni Mínus. Í stað Þrastar hefur verið ráðinn Sigurður Oddsson, söngvari Future Future, en enginn gítarleikari verður ráðinn í stað Frosta.

Fær spænsk verðlaun
Bandaríski tónlistarmaðurinn Bob Dylan fær spænsku heiðursverðlaunin Prinsinn of Asturias afhent í október næstkomandi. Formaður dómnefndarinnar sagði að Dylan væri „lifandi goðsögn í tónlistinni og leiðtogi þeirrar kynslóðar sem lét sig dreyma um að breyta heiminum“. Á meðal þeirra sem hafa áður unnið þessi sömu verðlaun, sem þykja afar virt, er leikstjórinn Woody Allen.

Radiohead með nýja plötu
Radiohead sagði frá því á heimasíðu sinni fyrr í vikunni að þeir væru langt komnir með nýja plötu. Hljómsveitin lokaði sig af í stúdíói síðasta haust og hefur unnið að plötunni með stuttum hléum síðan þá.

Tónlistarþörfin öðru sterkari
Systkinasveitin The White Stripes hefur lifað lengur en margar rokksveitir sömu kynslóðar. Hún fagnar tíu ára starfsafmæli í næsta mánuði, en eftir helgina kemur sjötta platan hennar í verslanir. Trausti Júlíusson skoðaði Icky Thump.

Netið í stað hljómplatna
Írska rokksveitin Ash ætlar að hætta að gefa út plötur. Þess í stað mun hún gefa út smáskífulög á netinu. „Með tilkomu niðurhalsins hefur áherslan aukist á einstaka lög,“ sagði Tim Wheeler, forsprakki Ash. „Það hjálpar ekki til að flestir virðast hafa gleymt hvernig á að gera góða plötu.“

Desyn til landsins
Plötusnúðurinn Desyn Masiello spilar á tveimur klúbbakvöldum hér á landi um helgina. Hann verður á Akureyri í kvöld og á laugardagskvöld verður hann á Nasa.

[box] spilar á Íslandi
Alþjóðlega hljómsveitin [box] heldur tónleika á Gauki á Stöng mánudaginn 18. júní. Sveitin er hugarfóstur dönsku menningarstofnunarinnar Inkling Film sem hafði það að markmiði að leiða saman fjóra kunna tónlistarmenn sem höfðu aldrei leikið saman áður, láta þá taka upp plötu og fara í stutta tónleikaferð um Evrópu.

Pollapönk í útvarpið
Tónlistarþátturinn Pollapönk hefur göngu sína á Rás 1 á föstudaginn kemur. Umsjónarmenn þáttarins eru Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason, betur þekktir sem Heiðar og Halli úr Botnleðju. Þeir félagar gáfu út plötuna Pollapönk í fyrra en hún var hluti af lokaverkefni þeirra við Kennaraháskóla Íslands.

Yoko Ono vill Amiinu
„Þetta kom okkur mikið á óvart og við erum búnar að hlæja mikið að þessu,“ segir María Huld Markan meðlimur hljómsveitarinnar Amiinu. Yoko Ono valdi um helgina lagið Seoul af nýrri plötu Amiinu, Kurr, sem eitt af átta lögum sem hún myndi hafa með sér á eyðieyju.

Nýtt lag frá Þú og ég
Gamli góði dúettinn Þú og ég tók nýlega upp nýtt lag sem heitir Sætasta stelpan á ballinu og er hægt að nálgast það á heimasíðunni tonlist.is. Þetta kemur eflaust mörgum á óvart enda er langt síðan dúettinn hætti störfum. Lagið er úr smiðju Gunnars Þórðarsonar og Jónasar Friðriks Gunnarssonar.