Síðasta öld mannkynsins Egill Helgason skrifar 5. október 2004 00:01
Martin Rees: Our Final Century. Arrow Books 2003. Ekki beinlínis bók sem eykur manni bjartsýni. Martin Rees telur um það bil helmingslíkur á að mannkynið komist í gegnum þessa öld án þess að verða fyrir meiriháttar katastrófu. Samkvæmt honum er heimsendir jafnvel í kortunum. Hætturnar eru ýmsar: Kjarnorkusprengjur í höndum hryðjuverkamanna, sýklar sem sleppa út af rannsóknarstofum eða er sleppt af ásettu ráði, fikt við erfðaefni, tölvur sem fara að hugsa sjálfar og taka völdin, nanótækni sem menn missa tökin á, eðlisfræðitilraunir sem hafa ófyrirséðar afleiðingar, gróðurhúsaáhrif, loftsteinn sem rekst á jörðina. Martin Rees verður heldur ekki afgreiddur sem rugludallur - eða það skyldi maður ekki ætla. Hann er Sir, prófessor við háskólann í Cambridge, sérfræðingur í geimvísindum og höfundur fjölda bóka. Þetta virkar altént ekki eins og neinn vísindaskáldskapur, heldur er meginkenning Rees að við séum að taka alltof mikla og margvíslega áhættu með jörðina og framtíð mannkyns. Hann vegur saman hætturnar og líkur á framförum og spyr hvaða áhætta sé réttlætanleg í vísindum? Þarf kannski að hafa meira eftirlit með vísindamönnum og uppgötvunum þeirra - og er það yfirleitt hægt? Tekst ekki alltaf einhverjum að svindla sér undan slíku eftirliti? Bókin er auðveld aflestrar, líka fyrir þá sem hafa enga teljandi vísindaþekkingu, en manni verður ekki um sel við lesturinn.
Brotasilfur Menning Silfur Egils Mest lesið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Lífið Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Lífið Fleiri fréttir KK og Sinfó: Clint Eastwood mætti í Eldborg Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu? Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Sjá meira