Skrifað undir kaupsamning Símans 5. ágúst 2005 00:01 MYND/Páll Bergmann
Geir H. Haarde fjármálaráðherra undirritaði í dag kaupsamning fyrir hönd íslenska ríkisins við Skipti ehf. um kaup Skipta á 98,8 prósenta hlut ríkisins í Símanum. Kaupsamningurinn er gerður á grundvelli tilboðs sem Skipti ehf. gerðu í hlutabréf ríkisins í Símanum þann 28. júlí síðastliðinn, en það hljóðaði upp á 66,7 milljarða króna og var hæst þriggja tilboða sem bárust í eignarhlut ríkisins. Í tilkynningu frá einkavæðingarnefnd segir að kaupverðið miðist við gengisskráningu Seðlabanka Íslands 27. júlí 2005 og fari greiðslan fram innan 5 virkra daga frá því að niðurstaða Samkeppniseftirlitsins liggi fyrir og að því gefnu að stofnunin samþykki kaupin fyrir sitt leyti. Þá er nýjum eigendum skylt að uppfylla skilyrði ríkisins er fram koma í söluskilmálum. Þannig má enginn einn einstakur aðili, skyldir eða tengdir aðilar, eignast stærri hlut í Símanum en 45 prósent fram að skráningu félagsins á aðallista í Kauphöll og ekki minna en 30 prósent af heildarhlutafé félagsins verður af hálfu kaupanda að bjóða almenningi og öðrum fjárfestum til kaups í síðasta lagi fyrir árslok 2007, en fyrir sama tíma skal félagið skráð á aðallista Kauphallarinnar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Viðskipti innlent Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Viðskipti erlent KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Eini sjö sæta rafbíllinn í sínum verðflokki Samstarf Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Viðskipti innlent Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita Viðskipti innlent Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýja samheitaorðbók sem samin er með hjálp gervigreindar Skerðingum að hluta frestað þökk sé hlýindum Sólrún, Brynjar og Aníta til Reita „En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ KS við það að kaupa B. Jensen Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Spá því að verðbólgan fari í 4,5 prósent Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Spá hressilegri vaxtalækkun Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Þrjú ráðin til Tryggja Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Sjá meira