Nótt úlfanna fer á hvíta tjaldið 30. nóvember 2006 14:00 Nótt úlfanna og Við enda hringsins eru spennubækur hans sem komnar eru út hér á landi
Norski krimmahöfundurinn Tom Egelands á íslenska þýðingu á markaði þessa hausts. Spennusöguna Nótt úlfanna sem hann sendi frá sér í fyrra þar sem lýst er hertöku og gíslatöku flugumanna frá Tjetsíu. Tilkynnt var á miðvikudag að nú yrði ráðsit í að kvikmynda þessa sögu og væri veittur til þess verks stórstyrkur úr Norska kvikmyndasjóðnum, næ hundrað miljónir íslenskra króna. Það er sænskur leikstjóri, Kjell Sundvall sem leikstýrir, en hann á að baki tíu myndir í fullri lengd og er Veiðimennirnir þekktust þeirra. Kjell er um þessar mundir að vinna við kvikmynd um Beck, hinn þekkta sænska rannsóknarlögreglumann. Úlfanótt kemur við kviku samtímasn, nú þegar þekktir gagnrýnendur Putins hafa verið myrtir, bæði í Moskvu og London, fyrir að forvitnast um vel þaggað framferði rússsneska hersins í Tjetseníu. Útgefandi Egeland í Rússlandi hefur hætt við að gefa verk hans út þar í landi, en verk þessa spennuhöfundar hafa farið víða síðari misserin. Í viðtali við norska dagblaðið segir Egeland í gær að menn verði að forðast að skoða mál þessa stríðshrjáða lands af einsýni. Landið eigi í stríði við stórveldi. Atburðirnir í Beslan og takan á leikhúsinu í Moskvu blindi menn. Hann bendir á að þó rússar kalli bardagamenn frá Tjetsíu hermdarverkamenn megi til dæmis norðmenn minnast að það voru skæruliðarnir sem sprengdu Rjukan-verið í stríðinu líka í augum þjóðverja. Egeland skrifar sjálfur handritið að Nótt úlfanna en framleiðslan mun kosta nærri 200 miljónir íslenskar.Verkið verður unnið sem kvikmynd fyrir bíó en líka í lengri gerð sem þáttaröð fyrir sjónvarp. Egeland er fæddur 1959 og starfaði sem blaðamaður áður en hann tók til starfa í sjónvarpi. Við enda hringsains kom út í fyrra og naut mikilla vinsælda. Hún er nú komin út í fjórtán löndum.
Menning Mest lesið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ Lífið Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Flottasti garður landsins - taktu þátt! Lífið samstarf Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Lífið Julian McMahon látinn Lífið „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög
Fóru hringinn um Grænlandsjökul á baki vinddreka: Brotin rifbein, kynngimagnað sjónarspil og óþægilegt návígi við ísbjörn Ferðalög