Sagað í sama knérunn í þriðja sinn 30. nóvember 2006 16:00 Sem fyrr er þó auðvitað ekkert eins og það sýnist og sjúkar áætlanir Amöndu og Jigsaw teygja sig lengra en nýjustu fórnarlömbin geta látið sig óra fyrir.
Hryllingsmyndin Saw náði miklum vinsældum árið 2004. Þetta var frekar einföld og ódýr mynd sem kom með ferskan andvara inn í staðnaðan hryllingsmyndabransann enda fóru höfundar hennar frumlegar leiðir til þess að skelfa áhorfendur og vekja óhug í hjörtum þeirra. Vinsældir myndarinar urðu til þess að framhaldsmyndinn Saw II var hrist fram ári síðar og nú er hann mættur þriðja árið í röð í Saw III. Jigsaw er á síðasta snúningi að þessu sinni og bíður dauðans undirlagður af krabbameini. Krankleikinn hindrar hann þó ekki í því að halda illvirkjum sínum áfram þar sem, Amanda, eitt af fáum fórnarlömbum hans sem lifði þrautir hans af hefur gerst lærlingur hans. Skötuhjúin ræna að þessu sinni lækninum Lynn sem fær að halda lífi svo lengi sem hún getur haldið Jigsaw gangandi en á meðan hún framlengir jarðvist sína með því að hjúkra illmenninu reynir Jeff, annað fórnarlamb, að leysa þraut að hætti Jigsaw á öðrum vettvangi.
Menning Mest lesið Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Lífið Fleiri fréttir Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira