Vöruskiptin óhagstæð um 13,4 milljarða 28. apríl 2006 09:37
Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13,4 milljarða króna í mars. Vörur voru fluttar út fyrir 19,9 milljarða króna en inn fyrir 33,3 milljarða króna. Í mars í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 6,3 milljarða á föstu gengi. Fyrstu þrjá mánuði ársins voru vörur fluttar út fyrir 48,8 milljarða króna en inn fyrir 80,7 milljarða króna. Vöruskiptahalli við útlönd nam tæpum 32 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 15,3 milljarða króna á sama gengi, að sögn Hagstofunnar. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 16,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. Verðmæti vöruútflutnings á fyrsta ársfjórðungi 2006 var 2,5 milljörðum meira en á sama tíma fyrir ári. Nemur aukningin 5,4 prósentum. Sjávarafurðir voru 58 prósent alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,6 prósentum meira en á sama tíma í fyrra. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38 prósent alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,4 prósentum meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukins álútflutnings. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 19,2 milljörðum króna meira en á sama tímabili í fyrra en aukningin nemur 31,1 prósenti. Mest varð aukning í innflutningi á fjárfestingavöru og hrá- og rekstrarvöru. Á móti kom samdráttur í innflutningi flugvéla.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sækja 540 milljarða til að gera upp skuldir ÍL-sjóðs Viðskipti innlent Konur oft einangraðar í karllægu umhverfi eldhúsanna Viðskipti innlent Stjörnukokkar að elda á Food & fun í ár Viðskipti innlent Vinnufélagarnir: Kjaftakerlingin, dramadrottningin, sá svartsýni og fleiri Atvinnulíf Alvogen lýkur endurfjármögnun allra langtímalána Viðskipti innlent Halla og Linda Dröfn á lista Harvard um merkilegar konur Viðskipti innlent Varað við svörtum eldhúsáhöldum Neytendur Síðasta hláturskast tók verulega á grindarbotninn Atvinnulíf Segja upp 52 sjómönnum Viðskipti innlent Að taka því ekki persónulega hvernig týpa þinn yfirmaður er Atvinnulíf Fleiri fréttir Sækja 540 milljarða til að gera upp skuldir ÍL-sjóðs Alvogen lýkur endurfjármögnun allra langtímalána Stjörnukokkar að elda á Food & fun í ár Konur oft einangraðar í karllægu umhverfi eldhúsanna Halla og Linda Dröfn á lista Harvard um merkilegar konur Segja upp 52 sjómönnum Tuttugu þúsund færri farþegar á milli ára Frá Seðlabankanum í sýndarheima CCP Hagnaður jókst um tæpan helming milli ára Truflanir á greiðsluhirðingu Rapyd Fylltu tankinn fyrir tólf hundruð krónur vegna kommuvillu Kveður Heimildina og hefur störf hjá Rauða krossinum Metsætanýting í febrúar hjá Icelandair Segir skilið við Grillmarkaðinn Skipar í valnefndir til að meta umsækjendur um stjórnarsetu Bein útsending: Iðnþing 2025 – Ísland á stóra sviðinu Airbus vottuð með hreyflum sem knýja þotur Icelandair Vill færa RÚV nær fyrirkomulaginu á Norðurlöndunum Grunnskólarnir pöntuðu fjögur þúsund pizzur Slæm staða einkarekinna fjölmiðla kom á óvart Árétta að uppsagnir geti verið liður í framkvæmd samruna Bein útsending: Magnast spennan – Orkuöryggi í breyttu umhverfi Tilnefningar til Íslensku vefverðalaunanna Norræni bankinn fjármagnar þrjú verkefni Heima Nýir eigendur endurreisa Snúruna Ráðinn yfirverkefnastjóri Colas Halldóra Fanney, Auður Erla og Sunna Ösp ráðnar til Samkaupa Starfsfólki fjölgar hjá RÚV en hríðfækkar í bransanum Eldrauður dagur í Kauphöllinni Bein útsending: Ársfundur Landsvirkjunar Sjá meira