Allt í háaloft hjá Airbus 19. júní 2006 12:31 Airbus A380 flugvél. Mynd/AFP
Stjórn EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans Airbus, ætlar að hittast til fundar og fjalla um stöðu mála. Tvisvar hefur verið tilkynnt um tafir á framleiðslu Airbus A380 risaþota frá fyrirtækinu nú síðast í liðinni viku. Ekki er búist við að flugvélarnar komi á markað fyrr en eftir hálft ár. Margir væntanlegir kaupendur hafa vegna þessa snúið sér annað og hafa sum þeirra krafið EADS um skaðabætur. Gengi hlutabréfa í EADS hefur fallið um heil 26 prósent vegna þessa. Búist er við að tafirnar verði til þess að tekjur EADS dragist saman um 500 milljón evur, jafnvirði rúmra 47 milljarða íslenskra króna, á árunum 2007 til 2010. Þá hefur aðstoðarforstjóri fyrirtækisins, Noel Forgeard, verið sakaður um innherjasvik en hann og þrjú barna hans seldu hluti sína í fyrirtækinu í mars. Skömmu síðar var tilkynnt um tafir á framleiðslu á þotum fyrirtækisins og lækkaði gengi bréfanna upp úr því. Forgeard hefur lýst yfir sakleysi vegna ásakana um innherjasvik. Breska blaðið Financial Times segir að framtíð Forgeards verði á meðal þess sem stjórnin ætli að ræða á fundi sínum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira