Lífið

Hjálmar kvöddu á Skriðuklaustri

Hinir víðförlu og viðkunnanlegu Hjálmar, hafa tekið þá ákvörðun að hætta samstarfi eftir þrjú gjöful ár, og tvær breiðskífur. Ástæða þess er einungis sú að meðlimir stefna nú sinn í hverja áttina, búandi beggja vegna Atlantshafsins, eins og segir í tilkynningu Hjálma.

Lokatónleikar hjálma voru haldnir að Skriðuklaustri síðastliðinn sunnudag.

Í tilkynningu sinni þakka Hjálmar öllum aðdáendum, aðstandendum og öðrum sem lagt hafa við hlustir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×