Samskip undir einu merki 29. september 2006 16:59 Nýtt merki Samskipa.
Á morgun verða tímamót í sögu Samskipa en þá sameinast öll starfsemi félagsins sameinast undir einu nafni og nýju merki. Breytingunum er ætlað að styrkja enn frekar ímynd Samskipa á alþjóðlegum flutningamarkaði. Í kjölfar kaupafélagsins á hollenska flutningafélaginu Geest North Sea Line og breska flutningafélaginu Seawheel hefur velta Samskipa þrefaldast og nema 60 milljörðum króna á yfirstandandi rekstrarári. Í tilkynningu frá Samskipum er haft eftir Ásbirni Gíslasyni, forstjóra Samskipa, að um sé að ræða tímamót í útrásarsögu fyrirtækisins. „Það hefur verið mikið verk að sameina þessi þrjú félög í eitt og á heildina litið er útkoman í samræmi við þær áætlanir sem lagt var upp með í upphafi, að skapa stórt og öflugt gámaflutningafélag sem er leiðandi á Evrópumarkaði," segir Ásbjörn í tilkynningu frá Samskipum. Útlitsbreytingar á merki Samskipa hafa takmörkuð áhrif á Íslandi en erlendis hverfa nöfn eins og Geest og Seawheel og í staðinn kemur nafn og nýtt merki Samskipa. „Við erum stolt af þessum breytingum. Við vorum í hópi fyrstu útrásarfyrirtækjanna og lítum á þetta sem enn eitt skrefið í þeirra þróun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum þar sem íslensk fyrirtæki eru æ meira að setja mark sitt á alþjóðleg viðskipti. Það gleður okkur líka hér heima að leggja á áfram rækt við þann frumkvöðlaanda sem einkennt hefur starfsemi Samskipa frá upphafi, bæði heima og erlendis, hjá hinu sameinaða félagi," segir Ásbjörn.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Atvinnulíf Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Viðskipti innlent 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Viðskipti innlent Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Sjá meira
15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Viðskipti innlent
15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Viðskipti innlent