Og Vodafone heitir Vodafone á Íslandi 5. október 2006 10:56 Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone á Íslandi. Mynd/GVA
Og fjarskipti ehf. (Og Vodafone), dótturfélag Dagsbrúnar, hefur gert samning við alþjóðlega farsímafélagið Vodafone Group um nánara samstarf og samnýtingu vörumerkis. Og Vodafone mun því hér eftir heita Vodafone á Íslandi og verða vörur og þjónusta fyrirtækisins markaðsett undir vörumerki Vodafone. Í tilkynningu frá félaginu segir að þetta sé í fyrsta skipti sem samstarfsfyrirtæki Vodafone Group fær leyfi til þess að nota nafn og merki Vodafone án þess að vera í eigu samstæðunnar. Íslendingar í útlöndum og ferðamenn á Íslandi eigi auk þess von á greiðari aðgangi að neti og þjónustu Vodafone og vörunýjungum. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone á Íslandi, segir að viðurkenningin sem fólgin er í samningnum sé bein afleiðing af þeim miklu kröfum sem íslenskir símnotendur geri um þjónustu og tækni. Þá er haft eftir Mathias Jungemann, framkvæmdastjóra hjá Vodafone Group, að hann sé mjög ánægður með að Og Vodafone sé orðið að Vodafone á Íslandi enda sé markaðurinn hér framsækinn, símnotendur kröfuharðir og vel að sér í tæknimálum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Trump-tollarnir hafa tekið gildi Viðskipti innlent Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Fleiri fréttir Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Sjá meira