Íslenski boltinn

Atli og Óskar til KR

Atli og Óskar taka sig vel út í nýju KR-búningunum frá Nike, sem frumsýndir voru í dag
Atli og Óskar taka sig vel út í nýju KR-búningunum frá Nike, sem frumsýndir voru í dag mynd/anton brink
Eins og fyrst kom fram í Fréttablaðinu í morgun var haldinn blaðamannafundur hjá KR í dag þar sem tilkynnt var að félagið hefði gert þriggja ára samning við þá Atla Jóhannsson frá ÍBV og Óskar Örn Hauksson frá Grindavík. Þessir ungu leikmenn eiga vafalítið eftir að styrkja vesturbæjarliðið verulega fyrir átökin næsta sumar, enda voru þeir tveir eftirsóttustu leikmennirnir á markaðnum í haust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×