Óperan Skuggaleikur, ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur og Sjón, verður frumsýnd í Íslensku óperunni laugardaginn 18. nóvember kl. 20.00. Skuggaleikur er ópera í fullri lengd fyrir fullorðna sem byggir á smásögunni Skugganum eftir H.C Andersen. Persónur óperunnar eru Skáldið, Skugginn, Skáldgyðjan og Prinsessan.
Sagan er dæmisaga, þar sem skáld felur skugga sínum að finna skáldgyðju sína. Skáldinu til skelfingar hverfur skugginn. Löngu seinna vitjar skugginn skáldsins aftur og er þá orðinn að manni án skugga og það sem verra er án siðferðiskenndar. Skugginn nær valdi yfir skáldinu og þeir skipta um hlutverk, skugginn verður maðurinn og skáldið verður skugginn. Þegar blekkingarnar loks ganga fram af skáldinu vill hann leiða sannleikann í ljós, en það er of seint og hann geldur fyrir með lífi sínu. Þessi dæmisaga er eitt af fáum ævintýrum sem H. C. Andersen skrifaði fyrir fullorðna. Sagan er margræð, vekur upp siðferðilegar spurningar og á ekki síður erindi í nútímanum en þegar hún var skrifuð. Óperan Skuggaleikur er bönnuð börnum innan 12 ára.
Tónlistin í verkinu er bæði ögrandi og skemmtileg í senn og textarnir eftir Sjón eru bæði dramatískir og hnyttnir. Einsöngvarar í sýningunni eru Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, sem syngur hlutverk Skáldsins, Sverrir Guðjónsson, kontratenór, sem syngur hlutverk Skuggans. Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, syngur hlutverk Skáldgyðjunnar, og Ásgerður Júníusdóttir, mezzósópran, syngur hlutverk Prinsessunnar. Hljómsveitin samanstendur af sex hljóðfæraleikurum og hljómsveitarstjóri er Guðni Franzson. Leikstjóri sýningarinnar er Messíana Tómasdóttir, en hún hannar einnig búninga, sviðsmynd og brúður sem spila stórt hlutverk í sýningunni. Ástrós Gunnarsdóttir er höfundur sviðshreyfinga og ljósahönnuður er David Walters.
Aðeins eru fyrirhugaðar þrjár sýningar á Skuggaleik:
Laugardagana; 18. nóv kl. 20, 25. nóv kl. 20og laugardaginn 2. desember kl. 20
Miðaverð er aðeins kr. 2.500.-
Listrænir stjórnendur og þátttakendur:
Tónskáld: Karólína Eiríksdóttir
Texti: Sjón
Hljómsveitarstjóri: Guðni Franzson
Leikstjóri: Messíana Tómasdóttir
Höfundur sviðshreyfinga: Ástrós Gunnarsdóttir
Söngvarar:
Eyjólfur Eyjólfsson tenór (Skáldið)
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran (Skáldgyðjan)
Sverrir Guðjónsson kontratenór (Skugginn)
Ásgerður Júníusdóttir mezzósópran (Skuggaprinsessan)
Leikmynd, búningar og brúðugerð: Messíana Tómasdóttir
Meðhöfundur að brúðum og grímum: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Lýsing: David Walters
Myndvinnsla sýningar og hönnun kynningarefnis: Salbjörg Jónsdóttir