Jón Páll segir að hann megi ekkert tjá sig um hlutverkið sem hann var prófaður í né myndina sjálfa. Honum gekk þó það vel í prufunum að hann var boðaður í næstu umferð. Það ætti að skýrast í maí hvort Jón Páll leiki í næstu Harry Potter-mynd. "Ég er búinn að fara og hitta aðilana sem standa að þessari mynd og lesa úr handritinu. Á þessu stigi fær maður bara að sjá búta úr handritinu og það hvílir mikil leynd yfir þessu öllu saman," segir hann. Þó ekkert fáist staðfest þess efnis telja Harry Potter-aðdáendur sem Fréttablaðið ræddi við ekki ósennilegt að umrætt hlutverk sé sjálfur Voldemort á yngri árum.

Næsta verkefni Jóns Páls átti að vera að leikstýra Partílandi, leikverki Jóns Atla Jónassonar, sem verður lokaatriðið á Listahátíð í Reykjavík hinn 26. maí. Möguleikinn á hlutverki í Harry Potter setur þó strik í reikninginn enda er Jón Páll boðaður út til London þegar æfingar ættu að standa sem hæst. "Já, þetta stefnir í voða og það getur verið að sýningin þurfi að frestast eða ég verði að gefa hana frá mér," segir Jón Páll. "Það er alla vega klárt að ef ég fæ þetta hlutverk er framundan gríðarlegur undirbúningur fyrir myndina, mikil handritavinna og önnur vinna með leikurunum."