Hvað á barnið að borða? 19. apríl 2007 11:00 Heilsuhúsið heldur námskeið fyrir áhugasama foreldra um mataræði ungra barna.
Námskeið um mataræði barna frá sex mánaða aldri. Hinn 7. maí næstkomandi fer fram námskeið í Heilsuhúsinu um hvernig á að útbúa einfaldan en næringarríkan mat fyrir börn frá sex mánaða aldri. Farið verður yfir á hvaða fæðutegundum er gott að byrja og hvenær. Einnig verður kennt að meðhöndla og búa til rétti sem innihalda ávexti og grænmeti, heilt korn á borð við quinoa, hirsi, hafra og spelti, baunir eins og linsubaunir sem eru afar prótín- og járnríkar, kaldpressaðar olíur, möndlumauk, sesammauk og margt fleira. Að sögn námskeiðshaldara, Ebbu Guðnýjar Guðmundsdóttur, nýtist þetta námskeið einnig vel þeim sem eru með eldri börn. Við lok námskeiðs fá nemendur veglegt uppskriftar- og fróðleikshefti. Námskeiðið, sem hefst klukkan 20.00, kostar 2.500 kr. Skráning fer fram í síma 694 6386 og á netfanginu ebbagudny@mac.com
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið