Allt varð þá að yndi 15. júní 2007 06:30 Einar Aðalsteinsson og Halldór Armand Ásgeirsson hafa dálæti á Þórbergi Þórðarsyni og segjast deila ímugusti hans á Akureyri. MYND/Valli
Yrkingar Þórbergs Þórðarsonar eru forvitnilegur hluti höfundarverks hans sem ekki hefur verið hampað mjög. Nú hyggjast tveir ungir menn hefja kveðskap skáldsins upp á annað plan og semja lög við vísur hans í sumar. Þeir kalla sig Vini Láru. Einar Aðalsteinsson og Halldór Armand Ásgeirsson hafast nú við í Austurbæjarskóla við grúsk sitt og tónsmíðar. Þeir eru báðir miklir Þórbergs-menn og telja honum ekki sýndur nægur sómi. „Við höfum báðir haft töluverðan áhuga á verkum Þórbergs en fengum hann fyrir alvöru þegar við komumst að því að Þórbergur hataði Akureyri,“ segir Einar grafalvarlegur og bætir við, „það eigum við sameiginlegt – við eigum lika voðalega erfitt með Akureyri.“ Halldór áréttar að Þórbergur hafi verið mjög óvenjulegur maður. „Við erum svolítið hrifnir af því hversu skrítinn hann var. Svo ber ekki mikið á honum, hann er dálítið vanmetinn. Hann hefur til dæmis ekki fengið að njóta sín í skólakerfinu miðað við hversu magnaður stílisti hann var.“Sósusálmur og fleiraStílistinn og gráglettna skáldið Vinir Láru vonast til þess að þeir geri Þórbergi Þórðarsyni ekki grikk með tónsmíðum sínum.Þórbergur er einna kunnastur fyrir bækur sínar Íslenskan aðal, Ofvitann og Bréf til Láru en höfundarverk hans er afar ævisögulegt, raunar samfelld heimild um einstakan mann og hugarheim hans auk þess sem Þórbergur var sagnaritari og þjóðháttafræðingur af lífi og sál.„Við erum annars vegar með bókina Eddu þar sem finna má fjölda kvæða og vísna eftir Þórberg og við höfum þegar samið nokkur lög við þau,“ útskýrir Einar og bætir því við bljúgur að þeir félagar vonist til þess að þeir séu ekki að gera skáldinu neinn grikk með framtakinu. „Síðan fengum við gamlar upptökur þegar Þórbergur er orðinn alveg eld-eldgamall og syngur þar eigin lög við vísurnar – þar er til dæmis „Sósusálmurinn“ og fleira skemmtilegt sem við ætlum að stúdera og útsetja.“ Aðdragandi þessa rekja félagarnir til málþings sem haldið var á nýstofnuðu Þórbergssetri í Suðursveit í vetur en þar voru þeir fengnir til þess að semja lög við kvæði Þórbergs. Það gekk með afbrigðum vel og hefur verið rætt um að gefa út hljómdisk með kveðskapnum og lögunum.Virk endurvinnslaVinir Láru eru báðir nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð en segjast ekki hafa gert sig mjög gildandi á tónlistarsviðinu áður. „Ég er reyndar í rokkhljómsveit,“ segir Halldór hæversklega og upplýsir að bandið það, Alræði öreiganna, hafi nýlega gefið út disk með rokkútgáfu sinni á tónverkinu um Pétur og úlfinn. „Þá var Einar sögumaður,“ bætir hann við. Virk endurvinnsla ungu mannanna á menningararfinum heldur því áfram með Þórbergs-ævintýrinu en sá verður færður í poppgallann.„Já, þetta er popptónlist, hún getur reyndar orðið fullrómantísk á köflum,“ segir Einar og hlær við. Halldór tekur undir það og fullyrðir að þeir séu báðir rosalega rómantískir menn. „Við reynum að hafa þetta hugljúft og sykursætt,“ segir hann og Einar útskýrir að þeir séu undir miklum áhrifum frá strákasveitinni Hanson sem tryllti lýðinn laust fyrir síðustu aldamót. „Kveðskapur Þórbergs er voðalega kaldhæðinn,“ áréttar Halldór enda voru yrkingar Þórbergs síst hefðbundnar. Oftar en ekki voru ljóð hans skopstæling á kveðskaparhefðum sem honum hugnaðist lítt. „Þar má til dæmis lesa æðisgengnar náttúrulýsingar þar sem allt er hafið upp til skýjanna til þess eins að vera rifið niður aftur. Við höfum mjög gaman af kaldhæðninni,“ bætir hann við og gefur lítið fyrir tal um stundatísku einlægninnar sem virðist ríkjandi þessi misserin. „Ég held að kaldhæðnin klárist aldrei, hún er ótæmandi brunnur,“ segir hann sannfærandi.Fiðrildi í dagVinir Láru eru einn af Skapandi sumarhópum Hins hússins sem árlega setja svip sinn á mannlífið í Reykjavík. Þeir félagar hyggjast dúkka upp með Þórbergslög í farteski sínu í sumar, t.d. á vikulegum uppákomum í miðbænum sem kallast „Föstudagsfiðrildi“ en hin fyrsta verður haldin í dag og hefst fjörið í miðbænum kl. 12. Fjórtán hópar munu starfa undir merkjum þeim í sumar en vettvangur sá hefur reynst mikil uppvaxtarstöð fyrir listamenn þjóðarinnar sem margir hverjir hafa stigið þar sín fyrstu skref.Miðbæjargestir eru hvattir til að hafa augun og eyrun hjá sér í dag því það er aldrei að vita nema þá heyrist sungið undurblítt úr vísnasarpi Þórbergs.
Mest lesið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Lífið Krakkatían: Fossar, dýr og prinsessur Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Lífið Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Lífið Skellti sér á djammið Lífið Frelsaði húsgögn Brynhildar Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Fleiri fréttir Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira