Lífið

Lokkarnir hennar Britney á ebay

Nýjustu fregnir herma að Britney sé komin með kollu.
Nýjustu fregnir herma að Britney sé komin með kollu. MYND/AP
Við höfum öll séð myndirnar og nú getum við boðið í hárið. Þegar Britney Spears rakaði af sér hárið á hárgreiðslustofu í Los Angeles hafði hún ekki áhuga á að taka lokkana með sér til minningar. Þeir féllu því í skaut hárgreiðslumeistarans. Nú hafa lokkarnir skotið upp kollinum á uppboðsvefnum ebay, og hljóða upphæðirnar upp á hvorki meira né minna en 70 milljónir íslenskra króna. Það virðist því vera nóg af aðdáendum sem vilja komast yfir hárið á Britney. Lokkarnir eru boðnir upp ásamt hálf-fullri dós af Red Bull og bláum kveikjara sem hún hafði meðferðis á hárgreiðslustofuna. Auglýsingin á ebay hljómar eitthvað á þessa leið: “Þetta er hluti af sögunni sem ekki er hægt að gera afrit af. Lokkarnir eru ekta. Þetta er ekki svindl.”





Fleiri fréttir

Sjá meira


×