Lífið

Gleypti tennur elskhuga síns

Rúmensk kona þurfti aðstoð lækna eftir að hún gleypti óvart tennur elskhuga síns í ástarleik. Konan er 38 ára og er frá Galati héraði í austurhluta Rúmeníu. Hún sagði læknum á sjúkrahúsi að hún hefði gleypt ókunnan hlut, en sagði ekki hvað. Það kom því læknum á óvart að sjá á röngtenmynd falskar tennur í maga konunnar.

Hún viðurkenndi að lokum að hafa verið að prófa nýja tegund af ástríðufullum kossi með þessum afleiðingum. Konan var á sjúkrahúsinu þar til aðskotahluturinn var farinn, en það tók líkama hennar tvo daga að losa sig við tennurnar á eðlilegan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×