Utah í úrslit Vesturdeildar 16. maí 2007 14:03 Derek Fisher fagnar hér sigri Utah í nótt, en hann skoraði gríðarlega mikilvægar körfur á lokasprettinum NordicPhotos/GettyImages
Utah Jazz tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir 100-87 sigur á Golden State í fimmta leik liðanna í Salt Lake City. Chicago heldur enn lífi í einvíginu við Detroit eftir nokkuð óvæntan stórsigur á útivelli í nótt 108-92. Utah vann einvígið við Golden State því 4-1 en þó voru flestir leikjanna hnífjafnir og fjörugir. Andrei Kirilenko skoraði 21 stig og hirti 15 fráköst fyrir Utah í nótt, Carlos Boozer 21 stig og hirti 14 fráköst og Derek Fisher var hetja Utah á ný þegar hann skoraði megnið af 20 stigum sínum þegar mest lá við á lokasprettinum. Utah mætir annað hvort San Antonio eða Phoenix í úrslitum Vesturdeildarinnar, en þangað hafði liðið ekki komist síðan árið 1998. Baron Davis var stigahæstur hjá Golden State með 21 stig, Stephen Jackson skoraði 16 stig og Matt Barnes 14 stig. Þar með lauk öskubuskuævintýrinu hjá lærisveinum Don Nelson, sem hafa komið gríðarlega á óvart í úrslitakeppninni. Chicago gerði sér lítið fyrir og yfirspilaði Detroit á útivelli og nú er staðan í einvíginu orðin 3-2 fyrir Detroit og næsti leikur fer fram í Chicago. Detroit náði 3-0 forystu í einvíginu, en nú verður liðið að fara að gæta að sér. Ben Gordon fann loks fjölina sína hjá Chicago og skoraði 28 stig og hitti úr 5 af 6 þristum sínum. Luol Deng skoraði 20 stig og Kirk Hinrich var með 17 stig og 13 stoðsendingar. Chauncey Billups skoraði 17 stig fyrir Detroit, Rip Hamilton 16 og Rasheed Wallace skoraði 15 stig. Fimmti leikur Cleveland og New Jersey verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira