Niðurlæging á Råsunda leikvanginum 6. júní 2007 20:03 Svíar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan með því að rassskella íslenska liðið á Rasunda AFP
Leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM var að ljúka og er óhætt að segja að íslenska landsliðið hafi verið niðurlægt af frændum okkur frá Svíþjóð. Svíar unnu 5-0 stórsigur og ljóst að eitthvað róttækt þarf að gerast til að snúa við gengi íslenska liðsins. Svíar áttu leikinn frá upphafi til enda og áttu strákarnir okkar sér ekki viðreisnar von. Marcus Allback skoraði fyrsta markið á 10 mínútu leiksins og kom Svíum í 1-0. Þá var það Anders Svensson sem bætti við öðru marki Svía á 40. mínútu. Olof Mellberg bætti við þriðja markinu rétt fyrir hlé. Staðan 3-0 í hálfleik. Það sama var upp á teningunum í síðari hálfleik og Markus Rosenberg kom Svíum í 4-0 á 48. mínútu. Það var svo Allback sem að rak smiðshöggið á 51. mínútu með sínu öðru marki, sem verður að teljast eitt skrautlegasta mark sem sést hefur lengi og undirstrikaði ráðaleysi íslenska liðsins í kvöld. Ívar Ingimarsson fékk þá knöttinn í höndina inni í vítateig og gekk út frá því að dómarinn hefði flautað vítaspyrnu. Sænsku sóknarmennirnir héldu það eflaust líka, en skutu boltanum í netið og markið stóð - því dómarinn flautaði aldrei vítaspyrnu. Niðurlæging landsliðsins er því staðreynd, liðið er með 4 stig eftir sjö leiki. Svíar eru komnir á toppinn í bili með 15 stig eftir sex leiki.
Íslenski boltinn Mest lesið Býður sig óvænt fram til forseta fyrst kvenna Sport Dortmund biðst afsökunar á að hafa gert grín að stamandi áhrifavaldi Fótbolti Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Fótbolti Littler laug því að hann væri hættur Sport „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Handbolti Potter undir mikilli pressu Enski boltinn Atlético og UEFA rannsaka myndband af hrákanum Fótbolti Erfið endurkoma hjá De Bruyne Fótbolti Óttast að Amorim verði rekinn ef illa fer gegn Chelsea Enski boltinn Langfljótastur í fimmtíu mörkin Fótbolti Fleiri fréttir Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Óttast að Amorim verði rekinn ef illa fer gegn Chelsea Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Atlético og UEFA rannsaka myndband af hrákanum Dortmund biðst afsökunar á að hafa gert grín að stamandi áhrifavaldi Potter undir mikilli pressu Langfljótastur í fimmtíu mörkin Markaveislur hjá Frankfurt og Sporting Erfið endurkoma hjá De Bruyne Tvenna Rashford tryggði þrjú stig Amanda spilar í Meistaradeildinni Sluppu með stig eftir stórkostlegt mark og annað óheppilegt Sædís og Arna í Meistaradeild Evrópu Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum Mourinho strax kominn með nýtt starf Messi að framlengja við Inter Miami Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Fær nýjan þriggja ára samning þrátt fjögur töp í fyrstu fjórum leikjunum Ísland stendur í stað þrátt fyrir stórsigur Fimm sigurmörk á síðustu sjö mínútunum „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist „Svekkjandi að við gefum þeim fjögur mörk“ „Sex til sjö leikmenn haltrandi inni á vellinum“ Mourinho tekur við Benfica „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Swansea gafst ekki upp og skaut Forest úr leik Tvenna Thuram tryggði Inter sigur og PSG fór létt með Atalanta Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Sjá meira