Hagnaður eykst hjá Sparisjóði Vestfirðinga 29. ágúst 2007 10:41 Frá Ísafirði. Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga, sem hefur útibú víða á Vestfjörðum, tæplega fjórfaldaðist á milli ára.
Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga nam 822 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 217 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er tæp fjórföldun á milli ára. Tekið er fram í árshlutauppgjöri sjóðsins að við innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla hækkaði eigið fé hans um 512 milljónir króna. Þá segir ennfremur að samanburðarfjárhæður vegna síðasta árs hafi verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. Hreinar vaxtatekjur sjóðsins námu 104 milljónum króna, sem er tveggja milljóna króna lækkun frá síðasta ári. Hreinar rekstrartekjur námu 1.323 milljónum og er það 786 milljónum krónum meira en í fyrra. Þá nam rekstrarkostnaður á tímabilinu 232 milljónum króna sem er 32 milljónum krónum meira en í fyrra. Heildareignir námu rúmum 11,5 milljörðum króna og er það 13 prósenta aukning frá síðasta ári. Arðsemi eigin fjár var 84 prósent miðað við 37,7 prósent í fyrra en eigið fé nam 3,1 milljarði króna. Það er 34 prósentum meira en á fyrri hluta árs 2006. Í ofanálag hækkaði eiginfjárhlutfall sjóðsins úr 12 prósent í lok síðasta árs í 14 prósent í lok júní. Í Í uppgjöri sjóðsins segir að verðbréf sjóðsins hafi hækkað umtalsvert á fyrri hluta árs. Eftir að reikningstímabilinu lauk lækkaði verðbréfaeignin nokkuð en hún er að mestu gengin til baka, að því er segir í uppgjörinu og bent á að gert sé ráð fyrir góðri afkomu á árinu í heild.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Viðskipti innlent Bónus ódýrari en Prís í fjögur skipti af fimm hundruð Neytendur „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ Atvinnulíf „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Atvinnulíf Íslandsbanki og VÍS skrifa undir samstarfssamning Neytendur MrBeast gerir tilboð í TikTok Viðskipti erlent „Þú vinnur eftir hentugleika á þeim staðsetningum sem henta“ Atvinnulíf „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ Atvinnulíf Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan Atvinnulíf Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Kaffi Kjós til sölu Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Karen inn fyrir Þórarin Björn Leifsson horfir til Vestmannaeyja Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda Þögul sem gröfin um auglýsinguna umdeildu Eftirlitið gefur lítið fyrir yfirlýsingu Styrkáss Erla Ósk ráðin forstöðumaður EMBA náms við HR Fjögur skip hefja leit að loðnu Segir seinkun Hvammsvirkjunar geta þýtt tugmilljarða tekjutap Svigrúm fyrir keppinauta „sem ástunda ekki jafnósvífna verðlagningu“ Hagnaðurinn dregst saman Hrönn stýrir Kríu Skoða að leita réttar síns vegna „óeðlilegra viðskiptahátta“ ríkisins Jónína tekur við af Elísabetu hjá BBA//Fjeldco Ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Ofar Indó sigurvegari Ánægjuvogarinnar Bein útsending: Mannamót markaðsstofa landshlutanna Undirrituðu samstarfssamning við Southwest Airlines Brynja nýr fjármálastjóri LIVE Íslenska ánægjuvogin kynnt á Grand Hóteli Elísabet Hanna til Bara tala Heildarafli síðasta árs 28 prósent minni en 2023 Hópuppsögn hjá Sidekick Health Sjá meira