Lehman Brothers tapaði 3,9 milljörðum dala 10. september 2008 12:59 Höfuðstöðvar Lehman Brothers í New York-borg í Bandaríkjunum. Mynd/AP
Bandaríski fjárfestingabankinn Lehman Brothers tapaði 3,9 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 358 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Bankinn flýtti birtingu uppgjörs vegna fregna um slæma lausafjárstöðu bankans og að hann rambi á barmi gjaldþrots. Tapið er að mestu komið vegna kaupa á skuldabréfavafningum sem tengjast bandarískum fasteignalánum. Þau hafa fallið mikið í verði. Gengi hlutabréfa í bankanum féll um 45 prósent í gær þegar upp úr slitnaði um sölu á fjórðungshlut í bankanum til kóreska þróunarbankans í vikunni. Gengi hlutabréfa hans hefur fallið um áttatíu prósent frá áramótum. Í tilkynningu frá bankanum í dag kemur fram að hann stefni að því að selja stóran hlut í bankanum og skilja fasteignahluta hans frá annarri starfsemi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Viðskipti innlent Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira