Handbolti

Ísland og Noregur skildu jöfn

Ólafur Stefánsson var markahæstur í dag
Ólafur Stefánsson var markahæstur í dag

Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Norðmenn í öðrum leik sínum á æfingamótinu í Danmörku í dag 28-28 eftir að hafa verið með tveggja marka forystu í hálfleik 14-12.

Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með 7 mörk, en í gær tapaði íslenska liðið fyrir Pólverjum á mótinu. Á morgun leikur liðið svo við Dani, en mót þetta er liður í undirbúningi liðanna fyrir EM í Noregi sem hefst um miðjan þennan mánuð.

Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 7(9), Snorri Steinn Guðjónsson 4(6), Einar Hólmgeirsson 4(7), Guðjón Valur Sigurðsson 3(7), Logi Geirsson 3(4), Arnór Atlason 2(5), Ásgeir Örn Hallgrímsson 2(3), Róbert Gunnarsson 2(5) og Hannes Jón Jónsson 1(1).

Í markinu varði Birkir Ívar Guðmundsson 8 bolta og Hreiðar Guðmundsson 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×