Hagnaður Alcoa dregst saman um helming 7. apríl 2008 20:43 Alain Belda, forstjóri Alcoa.
Hagnaður bandaríska álrisans Alcoa, sem meðal annars rekur álverið í Reyðarfirði, var helmingi minni á fyrstu þremur mánuðum þessa árs en á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn, fyrir skatta og gjöld, nam 303 milljónum dala, jafnvirði 21,8 milljörðum íslenskra króna, samanborið við 662 milljónir dala á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Hagnaður á hlut nam 37 sentum nú samanborið við 75 sent á hlut í fyrra. Þetta er talsvert undir væntingum greinenda sem spáðu hagnaði upp á 44 sent á hlut vegna afkomunnar á fjórðungnum. Tekjur námu 7,4 milljörðum dala á tímabilinu, sem er hálfum milljarði dala minna en í fyrra. Þetta er lítillega yfir væntingum. Hátt verð á raforku og hrávöru samhliða veikingu dals spilar inn í og fór verðþróunin út í verðlagningu á áli, að sögn fréttastofu Reuters sem bendir á að sökum þess að heimsmarkaðsverð á áli hafi farið hækkandi muni það skila sér í betri afkomu álrisans síðar á árinu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira