Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á evrópskum mörkuðum í dag. Fjármálafyrirtæki og flugfélög leiða lækkun dagsins. Gengi bréfa í breska fasteignalánafyrirtækinu Bradford & Bingley féll um rúm 24 prósent eftir að stjórnendur fyrirtæksins greindu frá því að þeir hefðu selt bandaríska fjárfestingarsjóðnum TPG 23 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir tæpar 179 milljónir punda, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna.
Hagnaður bankans nam 56 milljónum punda á fyrstu fjórum mánuðum ársins en það er 48 prósenta sadráttur á milli ára. Fyrirtækið leitaði eftir því að ná inn 300 milljónum punda með hlutafjárútboði til að bæta í dræmar afkomutölur. Útlit er fyrir að það nái tæpum 260 milljónum í kassann.
Þetta er fyrsta almenna lækkunin eftir hækkun í fjóra viðskiptadaga í evrópskum kauphöllum, að sögn Bloomberg-fréttaveitunnar.
Helsta ástæðan fyrir lækkuninni nú er verðhækkun á hráolíu, sem óttast er að setji skarð í afkomutölur flug- og rekstrarfélaga, og líkur á frekari afskriftum banka og fjármálafyrirtækja sem muni draga úr hagvexti í álfunni.
Bloomberg hefur eftir Dieter Winer, framkvæmdastjóra hjá svissneskum sjóði, að þótt það versta sé yfirstaðið á fjármálamörkuðum þá sé titringurinn nú eftirskjálftar. „Fjármálakreppan heldur áfram," segir hann.
FTSE-vísitalan í Bretlandi hefur lækkað um 0,86 prósent það sem af er dags. Dax-vísitalan í Þýskalandi hefur á móti lækkað um 1,06 prósent og Cac 40-vísitalan í Frakklandi um 1,41 prósent.