Þótt það fari ekki enn mikið fyrir því, þá eru kosningar til sveitarstjórna rétt handan við hornið. Kjördagur er 29. maí 2010, eða eftir um sjö mánuði.
Aðeins örlar þó á því að flokkarnir séu byrjaðir að telja inn í baráttuna.
Gísli Marteinn Baldursson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, minnti til dæmis djarflega á sig í viðtali í Fréttablaðinu fyrir stuttu. Gísli ítrekaði þar þá afstöðu sína að Reykjavíkurflugvöllur ætti að fara úr Vatnsmýrinni svo höfuðborgin gæti frekar þést inn á við fremur en þanist út að flatarmáli. Félagi Gísla af hægri vængnum, stærðfræðingurinn Pawel Bartoszek, var á sömu slóðum í afbragðspistli í Fréttablaðinu á föstudag.
Það athyglisverða við afstöðu þeirra félaga er með henni birtist töluvert önnur sýn en Sjálfstæðisflokkurinn hefur helst haldið á lofti í skipulagi höfuðborgarinnar undanfarin ár.
Stutt er síðan „byggð í Geldinganesi" var eitt helsta slagorð flokksins í kosningum og Geldinganesið átti líka vera lausn á miklum lóðaskorti í borginni.
Óþarfi er að fara mörgum orðum um að nýtt hverfi á þessum slóðum fellur ekki að hugmyndum um þéttingu byggðar í höfuðborginni.
Gísli Marteinn er að sjálfsögðu af allt annarri kynslóð en þeir stjórnmálamenn sem gerðu Geldinganesið að sínu hjartans máli. Þar á meðal voru þeir Björn Bjarnason og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem hafa kvatt sviðið eða eru á útleið.
Almennt virðist það vera einkennandi fyrir yngra fólkið í borgarmálunum að það vill frekar hugsa inn á við þegar kemur að borginni en til jaðranna. Skiptir vinstri eða hægri ekki máli í þeim efnum.
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, fékk á sínum tíma Íslenska aðalverktaka til að bjóðast til að standa straum af kostnaði við að leggja Miklubraut í stokk frá Snorrabraut til Grensásvegar gegn því að fá að byggja á lóðunum sem þar með myndast ofanjarðar. Sú fína hugmynd hefur væntanlega lent uppi á hillu í tíðum meirihlutaskiptum í Ráðhúsinu en er að minnsta kosti til taks þegar rofa fer til í byggingargeiranum á nýjan leik.
Það kann að hljóma undarlega að velta fyrir sér skipulagsmálum á borð við byggð í Vatnsmýri og Miklubraut í stokk á þessum tímum þegar sveitarfélög, og þar með talin höfuðborgin, eiga fullt í fangi með að standa undir lágmarksskyldum sínum.
Vissulega eru ýmis önnur mál ákaflega aðkallandi þessa dagana. En við höfum ekki efni á að hætta að hugsa um framtíðina.
Borgarskipulag er ekki dægurþras sem hægt er að ýta til hliðar heldur gríðarlegt fjárhagslegt hagsmunamál, sem snýst meðal annars um að fækka bílum á götum borgarinnar. Sífelld þyngri umferð og auknar fjarlægðir innan borgarmarkanna kalla á meiri fjárútlát til viðhalds gatna og bygginga á rándýrum umferðarmannvirkjum á borð við mislæg gatnamót. Það er til mikils að vinna að snúa af þeirri leið.
