Handbolti

U-21 árs liðið lagði Noreg

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar Kárason átti fínan leik í dag.
Rúnar Kárason átti fínan leik í dag.

Íslenska U-21 árs liðið í handknattleik mun spila um 13.-14. sætið á HM í Egyptalandi. Það varð ljóst í dag er liðið lagði Norðmenn örugglega, 34-24, í dag.

Staðan í hálfleik var 20-11 fyrir Ísland og eftirleikurinn auðveldur.

Mörk Íslands í leiknum: Ólafur Gústafsson 6, Oddur Grétarsson 5, Rúnar Kárason 5, Ásbjörn Friðriksson 5, Ólafur Bjarki Ragnarsson 4, Guðmundur Árni Ólafsson 4, Anton Rúnarsson 3, Bjarni Aron Þórðarson 1, Hjálmar Þór Arnarson 1.

Sveinbjörn Pétursson varði 18 skot í markinu og Ingvar Kristinn Guðmundsson 5.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×