Viðskipti erlent

Dópneysla vaxandi vandamál á vinnustöðum í Danmörku

Dópneysla er nú vaxandi vandamál á vinnustöðum í Danmörku. Skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða veitingahús, skrifstofur, byggingaframkvæmdir eða annað.

Fjallað er um málið í Jyllands-Posten. Þar segir að loksins þegar tekist hafi að útiloka áfengi, aðallega öldrykkju, frá dönskum vinnustöðum færist misnotkun á öðrum fíkniefnum í aukana. Er þar aðallega um örvandi efni að ræða eins og amfetamín og kókaín.

Jyllands-Posten ræðir við Finn Zierau lækni hjá Afvötnunarstöð Kaupmannahafnarsvæðisins sem segir að ákveðin kynslóðaskipti séu þegar komi að misnotkun á áfengi og fíkniefnum hjá vinnandi fólki. Áfengisvandamálið sé einkum bundið við eldra fólk, það er yfir 45 ára, og örvandi efnin við yngri hópa eða frá 25 til 45 ára.

Misnotkun áfengis, einkum öldrykkja, var þekkt vandamál hjá iðnaðarmönnum og byggingaverkamönnum á byggingasvæðum í Danmörku hér á árum áður. Verkalýðsforystunni tókst með markvissum aðgerðum að útrýma þessu vandamáli að mestu.

Nú hinsvegar ber svo við að verkamennirnir hafa í stórum stíl skipt út ölinu fyrir örvandi efni eins og amfetamín.

Og kókaín neysla meðal skrifstofufólks, einkum í fjármálageiranum, er einnig vaxandi vandamál.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×